Eins og ítrekað hefur verið bent á á þessum vettvangi undanfarin misseri hafa forsendur þeirra fjármálaáætlana sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur lagt fram verið í besta falli bjartsýnislegar og ákaflega ólíklegt að markmiðið um hallalaus fjárlög á næsta ári náist. Þetta er að raungerast eins og nýjar tölur Hagstofunnar um afkomu hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi sýna glögglega. Hagstofan áætlar að hún hafi verið neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8% af vergri landsframleiðslu tímabilsins. Fjárlög þessa árs gera ráð fyrir um tuttugu milljarða króna halla en leiddar hafa verið líkur að því á þessum vettvangi að hann verði nær sextíu milljörðum þegar árið er yfirstaðið. Vissulega mun fjörutíu milljarða króna arðgreiðsla Kerecis vegna sölu á hugverkarétti til móðurfélagsins skipta máli í þessu samhengi en hún breytir engu um hvert ríkisfjármálin stefna. Stjórnarandstaðan hefur bent á þetta í umræðum um fjármálaáætlunina á Alþingi að undanförnu og sagt hana byggja á forsendum sem nú þegar eru brostnar. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift