Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðsamanburður og kjúklingaréttur sigurvegarans

Read Full Article →

Deila Samkeppniseftirlitið sendi frá sér umræðuskjal í síðustu viku um vöruverð á dagvörumarkaðnum. Umræðuskjalið er hluti af viðleitni stjórnvalda til þess að ná verðbólgu niður, en í mars veitti Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra eftirlitinu þrjátíu milljóna króna viðbótarframlag með það að augnamiði að auka eftirlit með samkeppni á dagvörumarkaði. Í stuttu máli nýtti Sam­keppnis­eftirlitið þessar þrjátíu milljónir til að komast að þeim almæltu tíðindum að matvæla­verð væri hátt á Íslandi og meðal Evrópuríkja væri það einungis hærra í Sviss. Flestir sem lásu skjalið gerðu sér grein fyrir annmörkum þess – það er að segja að greining Samkeppniseftirlitsins tekur ekkert tillit til kaupmáttar og tekna og er því samanburðurinn tilgangslaus og hefur ekkert upplýsingagildi. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article