Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að veita Samkeppniseftirlitinu 30 milljóna króna viðbótarframlag til að vinna að áherslu ríkisstjórnarinnar um virka samkeppni á dagvörumarkaði og ná þannig niður verðbólgu. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að dagvöruverð á Íslandi sé með því hæsta sem þekkist í Evrópu. Kaup á dagvöru sé einn stærsti kostnaðarliður íslenskra heimila og þar af leiðandi stór þáttur í þróun verðbólgu. Af þessum sökum sé mikilvægt að samkeppnisaðstæður á dagvörumarkaði, og mörkuðum sem hafa áhrif á dagvöruverð, sæti skoðun. Hvað er dagvara? Dagvöruverslun er skilgreind svona í skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá 2019: Verslun sem selur dagvörur, þ.e. vörur sem tengjast daglegum neysluþörfum fólks, þ.e. mat- og drykkjarvörur, hreinlætis- og snyrtivörur og óvaranlegar heimilisvörur (aðallega hreingerningavörur). Notað sem samheiti fyrir verslanakeðjur og einstakar matvöruverslanir. Ráðstöfunin sé hluti af viðleitni stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og samræmist áherslum ríkisstjórnarinnar um mikilvægi virkrar samkeppni og öflugrar neytendaverndar. „Það er mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hafi bolmagn til að fylgja eftir áherslum stjórnar eftirlitsins. Í þeim áherslum er sérstaklega fjallað um mikilvægi samkeppni á dagvörumörkuðum, m.a. flutningamarkaði og eldsneytismarkaði. Er þetta mikilvægur liður í aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og til að efla virka samkeppni og neytendavernd,“ er haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.