Sverrir Briem, ráðgjafi og einn eigenda ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs, sinnir að mestu stjórnendaráðningum og hefur áratugareynslu af slíkum ráðningum. Spurður hvort að hans tilfinning sé að óvenju margir forstjórar eða framkvæmdastjórar stórra íslenskra fyrirtækja hafi látið af störfum á síðustu 12-18 mánuðum segir hann að það hafi vissulega verið mikið að gera hjá Hagvangi í stjórnendaráðningum, að minnsta kosti síðustu þrjú til fjögur árin. „Sú þróun hófst í raun í kringum Covid heimsfaraldurinn og hefur haldist síðan. Markaðurinn í heild sinni hefur verið mjög virkur á þessum tíma, ekki einungis þegar kemur að ráðningum forstjóra og framkvæmdastjóra heldur einnig annarra lykilstjórnenda.“ Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift