Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukinn hreyfanleiki meðal stjórnenda

  • What: Increased executive consulting activity in Icelandic companies
  • Impact: More executives are seeking advisory services
Read Full Article →

Sverrir Briem, ráðgjafi og einn eigenda ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs, sinnir að mestu stjórnendaráðningum og hefur áratugareynslu af slíkum ráðningum. Spurður hvort að hans tilfinning sé að óvenju margir forstjórar eða framkvæmdastjórar stórra íslenskra fyrirtækja hafi látið af störfum á síðustu 12-18 mánuðum segir hann að það hafi vissulega verið mikið að gera hjá Hagvangi í stjórnendaráðningum, að minnsta kosti síðustu þrjú til fjögur árin. „Sú þróun hófst í raun í kringum Covid heimsfaraldurinn og hefur haldist síðan. Markaðurinn í heild sinni hefur verið mjög virkur á þessum tíma, ekki einungis þegar kemur að ráðningum forstjóra og framkvæmdastjóra heldur einnig annarra lykilstjórnenda.“ Spurður um hvort að markaðurinn fyrir ráðningar forstjóra og framkvæmdastjóra hafi breyst mikið á undanförnum árum játar Sverrir því. Segja megi að markaðurinn hafi orðið kvikari. „Hreyfanleiki hefur aukist og bæði fyrirtæki og stjórnendur virðast opnari fyrir breytingum en áður, sem endurspeglast í meiri virkni á markaðnum.“ Aðspurður kveðst Sverrir ekki hafa skýra tilfinningu fyrir því hvort að vistaskipti meðal æðstu stjórnenda séu endilega tíðari í dag en fyrir rúmum áratug. „Hins vegar er líklegt að meiri hreyfing sé á markaðnum í dag, meðal annars vegna þess að meira er að gerast í viðskiptalífinu almennt. Sameiningar, uppkaup, hraðari tækniþróun og aukinn alþjóðlegur þrýstingur leiða til meiri breytinga og þar með meiri hreyfanleika í æðstu stöðum.“ Vönduð þarfagreining lykilatriði Þegar kemur að ráðningu forstjóra eða framkvæmdastjóra segir Sverrir mikilvægast að ráðningarferlið sé faglegt, vel skipulagt og byggt á skýrum og gagnsæjum forsendum. „Í því samhengi skiptir vönduð þarfagreining miklu máli, þar sem farið er rækilega yfir stöðu fyrirtækisins, áskoranir þess og þau markmið sem fram undan eru. Einnig þarf að horfa til framtíðarsýnar fyrirtækisins og skilgreina hvaða hæfni og leiðtogastíl þarf til að leiða félagið áfram til lengri tíma. Slíkt skapar traustan grundvöll fyrir vandaða ákvörðun og eykur líkurnar á að hæfasti einstaklingurinn verði ráðinn í starfið, bæði með tilliti til reynslu, leiðtogahæfni og þess hversu vel viðkomandi fellur að menningu, stefnu og framtíðarsýn fyrirtækisins.“ Spurður um hvaða leið fyrirtæki vilji helst fara við ráðningar í lykilstöður, það er hvort þau kjósi að auglýsa starfið eða fara í svokallaðar hausaveiðar (e. headhunt) segir Sverrir allan gang á því. „Sífellt algengara er að stórar og áberandi ráðningar séu auglýstar, enda eykur það gagnsæi og breikkar hóp umsækjenda. Á sama tíma eru þó aðstæður stundum þannig að ekki er mögulegt eða æskilegt að auglýsa, til dæmis vegna trúnaðar, tímapressu eða sérstakra markmiða, og þá er leitað beint til einstaklinga.“ Nánar er fjallað um málið í veglegu tímariti Frjálsrar verslunar , áskrifendur geta lesið greina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article