Sverrir Briem, ráðgjafi og einn eigenda ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs, sinnir að mestu stjórnendaráðningum og hefur áratugareynslu af slíkum ráðningum. Hann segir mannlega þáttinn alltaf skipta miklu máli inntur eftir því hvaða eiginleikum fyrirtæki séu helst að leita eftir í fari forstjóra eða framkvæmdastjóra. „Fyrirtæki eru mikið að horfa til þess að viðkomandi sé sterkur leiðtogi sem geti skapað traust, haft áhrif og fengið fólk með sér. Að auki skipta aðrir þættir máli, svo sem þekking á viðkomandi geira, fyrri reynsla úr sambærilegum störfum, stefnumótandi hugsun og geta til að takast á við breytingar.“ Hvað tímaramma ráðningaferlis þegar verið er að ráða í æðstu stöður segir Sverrir að það geti verið mjög mismunandi að lengd. „Hefðbundið ráðningarferli tekur að jafnaði um 3–6 vikur, en þegar um stjórnendastöður er að ræða getur ferlið oft tekið lengri tíma, meðal annars vegna ítarlegra mati, fleiri viðtala og meiri áherslu á samhæfni við stefnu og framtíð fyrirtækisins.“ Ráðningar í rúma hálfa öld Hagvangur var stofnað árið 1971 og er eitt elsta starfandi ráðgjafar- og ráðningarfyrirtæki landsins. Fyrirtækið þjónustar fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök í ráðningum og mannauðsmálum. Ráðningar á stjórnendum og lykilstarfsfólki er kjarnastarfsemi Hagvangs. Meðeigendur Sverris eru Geirlaug Jóhannsdóttir og Hlynur Atli Magnússon. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímariti Frjálsrar verslunar , áskrifendur geta lesið greina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .