Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fertram fjárfestir í NeckCare

Read Full Article →

Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið NeckCare er langt komið með að ljúka 500 milljóna króna hlutafjárhækkun. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, er meðal þátttakenda í fjármögnuninni og kemur nýr inn í hluthafahóp félagsins. „Við erum ótrúlega spennt fyrir því að fá krafta hans og leiðsögn til liðs við okkur. Hann er búinn að ganga í gegnum þetta áður og þekkir þetta ferli vel,“ segir Orri Guðmundsson, forstjóri NeckCare í viðtali í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. NeckCare hefur á undanförnum fjórum árum unnið að því að ná fótfestu á Bandríkjamarkaði með einkaleyfisvarðar lausnir sínar til greiningar og endurhæfingar á hálsskaða. Félagið er komið í viðskipti við 250 sjúkraþjálfunar- og læknastofur vestanhafs, en til samanburðar var fjöldi viðskiptavina þess tæplega 80 í árslok 2024. Endurkvæmar tekjur NeckCare á ársgrundvelli hafa nær fimmfaldast á einu og hálfu ári og nema nú ríflega einni milljón dala, eða um 120 milljónum króna. Orri Guðmundsson, forstjóri NeckCare, segir að stefnan sé sett á að endurkvæmar tekjur félagsins verði orðnar um 10 milljónir dala á næstu 2 til 3 árum. „Þetta er búið að ganga vonum framar. Það eru ekki mörg íslensk fyrirtæki sem hafa náð að hasla sér völl í bandaríska heilbrigðistæknigeiranum. Við horfum mikið til Össurar, Kerecis og Nox Medical og erum stolt af því að feta í þeirra fótspor,“ segir Orri. Næst skref NeckCare er að rekstur félagsins verði sjálfbær á sama tíma og stefnt er að áframhaldandi vexti. „Yfir 40 þúsund sjúklingar hafa notað lausnir NeckCare og við erum komin með viðskiptavini í 43 fylkjum Bandaríkjanna. Við teljum okkur því tilbúin í næsta fasa.“ Fréttin er hluti af ítarlegri umfjöllun í NeckCare í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article