Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Neck­Care notað af UFC, NFL-liði og hernum

Read Full Article →

Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið NeckCare hefur á undanförnum fjórum árum unnið að því að hasla sér völl Bandríkjamarkaði með einkaleyfisvarðar lausnir sínar til greiningar og endurhæfingar á hálsskaða. Félagið er komið í viðskipti við 250 sjúkraþjálfunar- og læknastofur vestanhafs. NeckCare hefur auk þess átt í viðskiptum við bandaríska flugherinn í nokkur ár, en stór hluti flugmanna hans sem hafa lokið störfum hafa hlotið krónískan hálsskaða. Jafnframt hefur bandaríski herinn hafið rannsóknir til þriggja ára, í samstarfi við NeckCare, á hreyfigetu í hálsinum eftir að hermenn verða fyrir heilahristingi. Búnaður félagsins nýtist einnig vel fyrir íþróttafólk, ekki síst í átakaíþróttum. Þannig hafa bardagasamtökin UFC innleitt lausnir NeckCare fyrir eftirlit með heilsu bardagamanna í svokölluðu „fit to fight“ verkefni þar sem fylgst er með mögulegum heilahristingi þeirra. „UFC er búið að framkvæma 600-700 mælingar þar sem þeir skoða bardagamenn fyrir og eftir bardaga. NeckCare er þá notað bæði í mælingar og fyrir endurhæfingu. Þessari íþrótt fylgir náttúrulega svakalegt álag á haus og háls,“ segir Orri Guðmundsson, forstjóri NeckCare. Yfir 40 þúsund sjúklingar hafa notað lausnir NeckCare. © Aðsend mynd (AÐSEND) Í síðasta mánuði náði NeckCare stórum áfanga með undirritun samnings við lið í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum. Allir leikmenn þess verða mældir reglulega með NeckCare í gegnum tímabilið sem gefur færi á að greina hverjir eru í meiri hættu á að verða fyrir meiðslum. Félagið á þegar í samstarfi við háskólalið í ameríska fótboltanum. Fréttin er hluti af ítarlegri umfjöllun í NeckCare í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article