Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þarf ekki að hringja kalt lengur

Read Full Article →

Orri Guðmundsson var ráðinn framkvæmdastjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins NeckCare árið 2022 og var falið það verkefni að leiða uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs félagsins í Bandaríkjunum. Félagið, sem var stofnað árið 2017, hafði þá tryggt sér einkaleyfisvernd og skráningu hjá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA), eftir langt rannsóknar- og þróunarstarf. Spurður um fyrstu skrefin í þessari uppbyggingu, rifjar Orri upp að hann flaug fyrst til Minneapolis í Minnesota-fylki þar sem hann bjó áður. Hann leitaði á Google eftir höfuðáverka- og hálsgreiningarstöðvum í fylkinu og hafði samband við eina. „Ég tók upp símann og hringdi, svo sendi maður tölvupóst, fékk í kjölfarið fundi og fimm vikum síðar vorum við komin með okkar fyrsta viðskiptavin. Þetta gerist ekkert af sjálfu sér og það er búið að vera hark að hafa samband við sem flesta. Við erum núna komin á þann stað að við fáum beiðnir um sirka 40 fundi á mánuði með aðilum sem hafa samband við okkur af fyrra bragði. Það er ótrúlega gaman að þurfa ekki lengur að taka upp tólið og hringja kalt. Það eru fleiri og fleiri sem vita af okkur,“ segir Orri og bætir við að samstarf við UFC, NFL-liðið og herinn hjálpi í þeim efnum. Sjá einnig Neck­Care notað af UFC, NFL-liði og hernum NeckCare er í dag komið í viðskipti við 250 sjúkraþjálfunar- og læknastofur í Bandaríkjunum. Stefnt er að því að stækka söluteymi félagsins. Í samkeppni við gráðubogann Heilbrigðislausnir NeckCare, sem var stofnað árið 2017, byggja á áralöngum vísindarannsóknum Dr. Eyþórs Kristjánssonar, sjúkraþjálfara sem þróaði og sannprófaði nýtt klínískt matspróf á hreyfistjórn hálsins. Búnaðurinn frá NeckCare er sá eini sinnar tegundar í heiminum og getur hann mælt með mikilli nákvæmni hreyfingu á hálsi. „Það hefur ekki verið hægt að mæla þetta almennilega, sérstaklega eftir áverka í kjölfar bílslyss eða heilahristings þar sem hálsinn verður mjög oft fyrir skaða. Í mörgum tilfellum er einfaldlega verið að greina fólk með því að horfa á hálsinn eða jafnvel mæla hreyfigetuna með gráðuboga,“ segir Orri. „NeckCare er vélbúnaður sem settur er á höfuð sjúklinga. Hugbúnaðurinn okkar mælir svo hreyfingar í hálsinum, auk þess að greina samhæfingu augna, heila og háls. Þá geta áverkar á hálsi einnig leitt til sjóntruflana, hausverks og/eða svima. Hálsinn er í raun eini staðurinn í stoðkerfinu sem getur haft þessar afleiðingar sökum þess hvað hann er nátengdur sjón- og miðtaugakerfinu.“ Fréttin er hluti af ítarlegri umfjöllun í NeckCare í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article