Forstjóraskipti virðast hafa verið óvenju tíð að undanförnu. Flestir þeirra sem nú hafa látið af störfum höfðu setið í forstjórastól árum og jafnvel áratugum saman. Margir höfðu mótað fyrirtæki frá grunni eða leitt þau í gegnum mikinn vöxt og umbreytingar. Nýir leiðtogar taka við keflinu hjá sumum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum landsins. Hér má finna lista yfir helstu forstjóra og framkvæmdastjóra sem létu nýverið af störfum. Í heildina eru 26 einstaklingar á listanum. Grímur Sæmundsen Grímur Sæmundsen steig til hliðar sem forstjóri Bláa lónsins í upphafi þessa árs en hann stofnaði fyrirtækið árið 1992 og hafði verið forstjóri frá þeim tíma. Undir hans stjórn hefur Bláa lónið vaxið og dafnað og er það eitt stærsta og þekktasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Hann hefur þó ekki sagt skilið við fyrirtækið en hann hefur nú tekið við stjórnarformennsku. Grímur er fæddur 4. febrúar 1955. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík og lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1981, en auk þess hlaut hann diplómu gráðu í íþróttalækningum frá London Hospital Medical College árið 1985. © Aðsend mynd (AÐSEND) Hann starfaði um tíma sem heimilislæknir í Reykjavík en hætti hefðbundnum læknisstöfum árið 1990 og hóf eigin atvinnurekstur, þar sem hann sinnti heilbrigðisráðgjöf fyrir fyrirtæki. Á þeim grunni stofnaði hann síðan ráðgjafarfyrirtækið Heilsuvernd ehf. Þá var hann meðal frumherja í heilsuræktarbyltingunni á sínum tíma og stofnaði heilsuræktarstöðina Mátt sem síðar rann inn í Hreyfingu – heilsurækt. Á starfsferli sínum hefur Grímur komið að og hrint í framkvæmd fjölmörgum nýsköpunarverkefnum á heilbrigðissviði. Árin 2014 til 2018 var hann formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF. Grímur hefur einnig tekið virkan þátt í íþróttastarfi en hann er margfaldur bikar- og Íslandsmeistari í knattspyrnu með Val og hefur einnig gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir félagið og formennsku. Grímur og Bláa lónið hafa hlotið ýmsar viðurkenningar í gegnum tíðina en Grímur var til að mynda bæði valinn markaðsmaður ársins af ÍMARK og maður ársins af Frjálsri verslun árið 2013. Þá fengu Grímur og Bláa lónið viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2016 og í byrjun árs hlaut Grímur Ásuverðlaunin fyrir afrek á sviði nýsköpunar. Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur tekið við sem forstjóri Bláa lónsins. Kári Stefánsson Kári Stefánsson lét af störfum sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar en hann stofnaði fyrirtækið árið 1996 og hefur verið forstjóri frá upphafi. Kári er fæddur 6. apríl 1949. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og kandidatprófi í læknisfræði árið 1976. Þá lauk hann sérfræðingsprófi í taugalækningum frá University of Chicago árið 1983 og taugameinfræði árið 1984 auk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 1988. © Morgunblaðið/Eggert (Morgunblaðið/Eggert) Meðan hann var í námi starfaði hann sem aðstoðarlæknir héraðslæknis á Hvammstanga, Akureyri og Seyðisfirði. Síðar var hann aðstoðarlæknir á lyflæknisdeild Landspítalans og heilsugæslulæknir á Hvammstanga, aðstoðarlæknir á Kleppspítala og kandidat á Borgarspítala, Landspítala og Landakotsspítala. Hann var þá aðstoðarlæknir við University of Chicago og síðar meðprófessor og loks prófessor við skólann. Í áratug starfaði hann sem forstöðumaður rannsóknarstofu í taugaefna- og ónæmisefnafræði við skólann frá árinu 1982. Þar á eftir var hann skipaður forstöðumaður Tilraunarstöðvar HÍ í meinafræði að Keldum og prófessor við læknadeild HÍ um skeið en tók síðan við sem prófessor í taugalækningum og taugameinafræði við Harvard Medical School. Árið 1995 stofnaði hann deCODE genetics Inc. og dótturfyrirtækið Íslenska erfðagreiningu, og var bæði forstjóri og stjórnarformaður. Kári hlaut meðal annars Útflutningsverðlaun forseta Íslands árið 2020, William Allan verðlaunum bandaríska mannerfðafræðifélagsins árið 2017, og árið 2010 var hann á meðal hundrað áhrifamestu manna heims á lista tímaritsins Time. Árið 2002 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Árið 2016 safnaði hann 87 þúsund undirskriftum þar sem þess var krafist að framlög til heilbrigðismála yrði aukin en um var að ræða stærstu undirskriftasöfnun hér á landi frá upphafi. Kári var þá áberandi í Covid-faraldrinum og spilaði Íslensk erfðagreining þar lykilhlutverk. Daníel F. Guðbjartsson er í dag forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Róbert Wessman Róbert Wessman ákváð að láta af störfum sem forstjóri líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech fyrr í ár og einbeita sér að stjórnarformennsku. Hann stofnaði fyrirtækið árið 2013 og hefur gegnt stjórnarformennsku frá stofnun en hann hafði gegnt forstjórastöðunni frá ársbyrjun 2023. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Róbert er fæddur 4. október 1969. Hann útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund árið 1989 og árið 1993 útskrifaðist hann sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Samskipum fyrst um sinn þar sem hann gegndi ýmsum stjórnunarstörfum en tók síðar við sem forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta árið 1999. Delta og Pharmaco sameinuðust árið 2002 og tóku upp nafnið Actavis tveimur árum síðar. Róbert gegndi stöðu forstjóra fyrirtækisins til ársins 2008 og undir hans stjórn varð Actavis að einu stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Árið 2009 kom Róbert að stofnun Alvogen og gegndi stöðu forstjóra og stjórnarformanns en fyrirtækið varð eitt af 15 stærstu samheitalyfjafyrirtækjum heims. Loks stofnaði hann Alvotech árið 2013. Í dag gegnir hann einnig stjórnarformennsku í Alvogen, Lotus Pharmaceuticals og Adalvo, meðal annars. Hann var til að mynda valinn af Frjálsri verslun sem maður ársins í íslensku atvinnulífi árið 2006. Hann var valinn leiðtogi ársins á stærstu lyfjasýningu heims í Madríd árið 2018 af fagtímaritinu og fréttaveitunni Generics Bulletin. Árið 2024 hlaut Róbert sérstaka viðurkenningu Samtaka iðnaðarins fyrir ómetanlegt framlag til íslensks atvinnulífs og verðmætasköpunar í landinu. Lisa Graver hefur tekið við sem forstjóri Alvotech. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, sem kom út í morgun. Hægt er að kaupa ritið hér .