Flestir þeirra sem nú hafa látið af störfum höfðu setið í forstjórastól árum og jafnvel áratugum saman. Margir höfðu mótað fyrirtæki frá grunni eða leitt þau í gegnum mikinn vöxt og umbreytingar. Nýir leiðtogar taka við keflinu hjá sumum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum landsins. Hér má finna lista yfir helstu forstjóra og framkvæmdastjóra sem létu nýverið af störfum. Í heildina eru 26 einstaklingar á listanum. Orri Björnsson Skarphéðinn Orri Björnsson ákvað undir lok síðasta árs að láta af störfum sem forstjóri líftæknifyrirtækisins Algalífs í Reykjanesbæ en hann hafði verið forstjóri frá stofnun fyrirtækisins árið 2013. Fyrirtækið, sem framleiðir fæðubótarefni úr örþörungum, hefur vaxið og dafnað undir hans stjórn en síðustu ár hefur félagið unnið að því að byggja nýja og stærri verksmiðju sem mun stórauka framleiðslugetuna. © Hulda Margrét (Hulda Margrét) Orri er fæddur 25. janúar 1971. Áður en hann hóf störf hjá Algalífi leiddi Orri ýmis verkefni í lyfja- og líftæknigeirunum um árabil. Skömmu fyrir aldamót hóf hann störf hjá Delta, sem síðar varð Actavis. Síðar var hann sérstakur ráðgjafi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur þá lengi verið viðloðinn pólitík og tók til að mynda fyrst þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði árið 1994. Eftir að hann lét af störfum hjá Algalíf tók hann við sem formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar og í febrúar sl. var Orri kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Kári Marís Guðmundsson tók við sem forstjóri Algalífs í desember 2025. Kári Marís Guðmundsson Kári Marís Guðmundsson lét af störfum sem forstjóri kísilversins PCC á Bakka í nóvember 2025 en hann hafði gegnt stöðunni í rúmt ár. © Samsett (SAMSETT) Kári er iðnaðarverkfræðingur með meistaragráðu í efnisfræði frá DTU í Danmörku. Hann hóf störf hjá Alcan samhliða námi árið 2002 og fór yfir til Elkem árið 2008, þar sem hann var fyrst ráðinn sem sérfræðingur. Hann varð þá framkvæmdatjóri framleiðslu hjá Elkem á Íslandi og leiddi síðar söluteymi Elkem ASA sem bar ábyrgð á sölu og markaðsstjórn úr sex verksmiðjum fyrirtækisins í þremur heimsálfum. Hann hóf þá upprunalega störf hjá PCC árið 2023. Hann tók við sem forstjóri Algalífs í desember 2025. Kristín Anna Hreinsdóttir tók við af Kára sem forstjóri PCC. Gréta María Grétarsdóttir Gréta María Grétarsdóttir sagði upp sem forstjóri lágvöruverslunarinnar Prís í desember 2025 en hún hafði verið í brúnni frá því að verslunin opnaði í ágúst 2024. © Aðsend mynd (AÐSEND) Gréta María er fædd 13. ágúst 1980. Hún lærði véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands. Eftir námið starfaði Gréta María hjá VKS/Kögun, þar sem hún sinnti gæðamálum, sem og ráðgjöf og upplýsingatækni. Árið 2007 færði Gréta María sig yfir í Sparisjóðabankann þar sem hún starfaði sem sérfræðingur í fjárstýringu og árið 2009 var hún í fjárstýringu hjá Seðlabanka Íslands í tæpt ár eða til ársins 2010 þegar hún var ráðin til Arion banka. Árið 2016 var Gréta María ráðin fjármálastjóri Festi og árið 2018 tók hún við sem forstjóri Krónunnar. Eftir að hún lét af störfum hjá Krónunni hóf hún störf sem framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brimi og var forstjóri Arctic Adventures. Hún var síðan ráðin framkvæmdastjóri Heimkaupa í maí 2023 og stýrði loks opnun Prís í ágúst 2024. Gréta hlaut Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar árið 2019 fyrir áherslu á umhverfis- og lýðheilsumál í störfum sínum hjá Krónunni. Þá hefur hún setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja. Svanur Valgeirsson stýrir Prís í dag. Margrét Tryggvadóttir Margrét Tryggvadóttir óskaði eftir því í maí 2025 að láta af störfum sem forstjóri Nova en hún hafði verið lykilstjórnandi hjá félaginu frá stofnun og gegnt starfi forstjóra frá árinu 2018. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Margrét er fædd 19. desember 1977. Hún útskrifaðist með B.Sc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskólanum, sem er í dag Háskólinn í Reykjavík. Margrét hóf störf hjá fjarskiptafyrirtækinu Tali árið 1999 þar sem hún starfaði í þjónustuveri en síðar varð hún vörustjóri þegar Tal og Íslandssími sameinuðust undir merkjum Vodafone. Árið 2005 tók hún við sem forstöðumaður markaðsmála fyrir Sparisjóðinn og gegndi því starfi þar til hún kom að stofnun Nova árið 2006. Til að byrja með leiddi Margrét markaðs- og vefdeild fyrirtækisins en árið 2012 tók hún við sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustu. Árið 2017 var hún ráðin aðstoðarforstjóri og ári síðar var hún orðin forstjóri. Í dag er hún stærsti einstaki hluthafi Nova. Sylvía Kristín Ólafsdóttir starfar í dag sem forstjóri Nova. Gunnar Egill Sigurðsson Gunnar Egill Sigurðsson ákvað í maí 2025 að láta af störfum sem forstjóri Samkaupa en hann hafði gegnt starfinu frá árinu 2022. Gunnar Egill er fæddur 18. júní 1980. Hann útskrifaðist með gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og er með MBA gráðu frá Babson Collage í Boston. Hann hóf upprunalega hjá Samkaupum árið 2003 en árið 2008 var hann ráðinn forstöðumaður verslunarsviðs fyrirtækisins og árið 2016 tók hann við sem framkvæmdastjóri sviðsins. Hann tók loks við sem forstjóri Samkaupa árið 2022 en ákvað að segja starfi sínu lausu í kjölfar samruna Samkaupa og Atlögu, áður Heimkaup. Hann hefur nú hafið störf sem framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. Auður Daníelsdóttir er í dag forstjóri Samkaupa. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, áskrifendur geta lesið greinina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .