lestir þeirra sem nú hafa látið af störfum höfðu setið í forstjórastól árum og jafnvel áratugum saman. Margir höfðu mótað fyrirtæki frá grunni eða leitt þau í gegnum mikinn vöxt og umbreytingar. Nýir leiðtogar taka við keflinu hjá sumum af stærstu og þekktustu fyrirtækjum landsins. Hér má finna lista yfir helstu forstjóra og framkvæmdastjóra sem létu nýverið af störfum. Í heildina eru 26 einstaklingar á listanum. Guðjón Auðunsson Guðjón Auðunsson lét af störfum sem forstjóri fasteignafélagsins Reita í apríl 2024 en hann hafði gegnt stöðunni frá árinu 2010. © Aðsend mynd (AÐSEND) Guðjón er fæddur 28. nóvember 1962. Hann er rekstrarhagfræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Áður en hann hóf störf hjá Reitum starfaði hann um árabil sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá N1, áður Olíufélaginu Esso. Þar áður vann hann sem framkvæmdastjóri hjá Samvinnuferðum Landsýn, Navís Landsteinum og sem forstöðumaður hjá Eimskip. Í september 2024 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, systurfélagi Mjólkursamsölunnar. Guðni Aðalsteinsson tók við af Guðjóni sem forstjóri Reita. Árni Stefánsson Árni Stefánsson ákvað í maí 2025 að láta af störfum sem forstjóri Húsasmiðjunnar en hann hafði gegnt starfinu frá árinu 2013. © Aðsend mynd (AÐSEND) Árni er fæddur 31. júlí 1973. Hann er með MBA gráðu í alþjóðastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði um árabil hjá olíufélaginu Esso, sem síðar varð N1, og var meðal annars markaðsstjóri fyrirtækjasviðs, forstöðumaður rekstrardeildar og framkvæmdastjóri vöru- og rekstrarsviðs. Árið 2012 varð hann framkvæmdastjóri Bílanausts en einu ári síðar tók hann við sem forstjóri Húsasmiðjunnar. Birna Ósk Einarsdóttir hefur tekið við sem forstjóri Húsasmiðjunnar. Garðar Hannes Friðjónsson Garðar Hannes Friðjónsson lét af störfum sem forstjóri Eikar en hann hafði gegnt starfinu frá árinu 2002. Garðar Hannes er fæddur 28. júlí 1971. Hann er með BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá University of Salford á Englandi. Til að byrja með starfaði hann sem aðstoðarframkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Kringlunnar skömmu fyrir aldamót og síðar sem framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Þyrpingar. Hann tók síðan við sem forstjóri Eikar við stofnun félagsins árið 2002. Í dag er hann framkvæmdastjóri Burðarbita ehf. Hreiðar Már Hermannsson hefur tekið við sem forstjóri Eikar. Ægir Már Þórisson Ægir Már Þórisson hætti sem forstjóri Advania á Íslandi í febrúar 2025 en hann hafði gegnt starfinu frá árinu 2015. © Aðsend mynd (AÐSEND) Ægir Már er fæddur 23. apríl 1973. Hann er með BA-gráðu í sálfræði og Cand.Psych í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Hann starfaði um árabil hjá Capacent, fyrst sem ráðgjafi áður en tók síðar við sem mannauðsstjóri og var loks framkvæmdastjóri ráðgjafar. Hann hóf upprunalega störf hjá Advania árið 2011 þar sem hann var framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála en tók við sem forstjóri fjórum árum síðar. Í dag leiðir Ægir Már mannauðs- og vinnustaðamenningu Advania þvert lönd og markaði. Hildur Einarsdóttir er í dag forstjóri Advania á Íslandi. Ari Fenger Ari Fenger ákvað að láta af störfum sem forstjóri Nathan, áður Nathan & Olsen, í maí 2026 en hann hafði verið forstjóri í 18 ár. Hann hefur nú tekið við sem stjórnarformaður Nathan. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Ari Fenger er fæddur 21. september 1980. Hann byrjaði að vinna sem vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen strax eftir útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Árið 2006 tók hann við sem forstjóri fyrirtækisins og árið 2008 varð hann forstjóri 1912 ehf., sem var eignarhaldsfélagið sem átti og rak Nathan & Olsen, Ekruna og Emmessís. Í október 2025 sameinuðust Nathan & Olsen, Ekran og 1912 undir nafninu Nathan. Ari tók þá sæti í Viðskiptaráði Íslands árið 2014 og var formaður árin 2020-2024. Í dag er hann einnig einn stærsti hluthafi fjárfestingarfélagsins Stoða. Jón Mikael Jónsson var ráðinn forstjóri Nathan hf. og tekur við stöðunni í sumar. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, áskrifendur geta lesið greinina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .