Noregur vann Írak 4-1 í fyrsta leik Norðmanna á HM í fótbolta karla síðan 1998. Norðmenn eru hæstánægðir með sína menn og reikna má með að sigrinum verði fagnað vel og lengi. Norðmenn skoruðu þrjú mörk í leiknum og Írakinn Aymen Hussein skoraði eitt mark fyrir Írak og síðar sjálfsmark undir blálok leiksins. Erling Haarland skoraði fyrsta markið á 30. mínútu. Aymen Hussein skoraði svo mark fyrir Írak á 39. mínútu. Leo Ostigard átti svo annað mark Normanna sem hann skoraði á 76. mínútu. Það var á brattann að sækja fyrir Íraka og Hussein skoraði svo sjálfsmark á lokasekúndum leiksins á 90. mínútu og 6. sekúndu. Leiknum lauk því með fjórum mörkum fyrir Noreg og einu fyrir Írak.