Norðmenn unnu Senegala 3-2 í leik liðanna í I-riðli í New Jersey í nótt. Erling Haaland átti stórleik og skoraði tvö mörk fyrir Noreg. Marcus Holmgren Pedersen átti þó fyrsta mark leiksins sem kom á 43. mínútu. Haaland skoraði annað mark fljótlega í upphafi síðari hálfleiks eða á 48. mínútu. Um fimm mínútum síðar kom fyrsta mark Senegala þegar Ismaila Sarr skoraði. Haaland beið ekki boðanna og skoraði þriðja mark Norðmanna á 58. mínútu. Sarr skoraði svo annað mark Senegala þegar komið var fram í uppbótatíma á 93. mínútu.