Norðmenn unnu Senegala 3-2 í leik liðanna í I-riðli í New Jersey í nótt. Erling Haaland átti stórleik og skoraði tvö mörk fyrir Noreg. Marcus Holmgren Pedersen átti þó fyrsta mark leiksins sem kom á 43. mínútu. Haaland skoraði annað mark fljótlega í upphafi síðari hálfleiks eða á 48. mínútu. Um fimm mínútum síðar kom fyrsta mark Senegala þegar Ismaila Sarr skoraði. Haaland beið ekki boðanna og skoraði þriðja mark Norðmanna á 58. mínútu. Sarr skoraði svo annað mark Senegala þegar komið var fram í uppbótatíma á 93. mínútu. Haaland er fyrsti leikmaðurinn síðan 2018 til að skora mörk í fyrstu tveimur leikjum á HM. Bretinn Harry Kane skoraði síðast mörk í báðum fyrstu leikjum enska landsliðsins árið 2018. Frakkar og Norðmenn mætast á föstudaginn. Það er næsta víst að sá leikur verði spennandi. Liðin eru jöfn að stigum í I-riðli, með sex stig hvort. Írakar og Senegalar eru jafnir með núll stig hvor. Írak og Senegal eiga leik á föstudaginn sömuleiðis. Þrátt fyrir að Senegalar séu stigalausir í riðlinum þá gætu þeir átt möguleika á að komast áfram sem eitt af bestu liðunum í þriðja sæti riðlanna. Til að þeir eigi möguleika á því þá verða þeir að vinna Íraka.