Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leikmaður KR selur salernisrúllur í áskrift

Read Full Article →

Áskriftarþjónustan Rúllupp mun bráðum fagna eins árs afmæli sínu en fyrirtækið var stofnað í fyrrasumar af Gyrði Hrafni Guðbrandssyni, knattspyrnumanni í KR. Um er að ræða nýjung á Íslandi þar sem hægt er að gerast áskrifandi að klósettpappírsrúllum. Gyrðir segir í samtali við Viðskiptablaðið að margir eigi það til að spyrja hann hvort hugmyndin að þjónustunni hafi orðið til eftir að hafa orðið pappírslaus á salerninu. „Ég á nú bara stóra fjölskyldu og við vorum alltaf að kaupa það sama í búðinni en svo á maður það til að gleyma að kaupa hitt og þetta. Ég er líka mjög hrifinn af áskriftarleiðum og fór bara að pæla hvort ég gæti ekki blandað þessu saman í eina hugmynd.“ Hann byrjaði að spyrja vini og fjölskyldumeðlimi hvort það væri mögulegur áhugi fyrir slíkri áskriftarþjónustu og segir að viðbrögðin hafi verið mjög jákvæð. „Viðskiptavinir hafa verið mjög ánægðir með gæðin og það kemur þeim líka á óvart hversu mikill pappír er í hverri rúllu.“ „Mér fannst líka markaðurinn vera pínulítið einsleitur þar sem flestallir voru að bjóða upp á sama klósettpappírinn sem er unninn úr trjám. Ég vildi koma með eitthvað nýtt og ferskt á markaðinn og ákvað því að flytja inn sérstakar klósettpappírsrúllur úr bambustrjám.“ Gyrðir segir að bambusrúllurnar hafi fengið mjög góð viðbrögð og bætir við að efnið í þeim sé bæði mjúkt og sterkt. „Viðskiptavinir hafa verið mjög ánægðir með gæðin og það kemur þeim líka á óvart hversu mikill pappír er í hverri rúllu.“ Rúllupp býður bæði upp á endurunninn klósettpappír og bambusklósettpappír og kostar mánaðaráskrift á bilinu fimm til tíu þúsund krónur. Hægt er að panta 24 eða 48 rúllur eftir stærð heimilisins og mun Rúllup einnig bjóða upp á fyrirtækjaþjónustu á næstunni. „Það eru nokkur hundruð manns nú þegar í áskrift hjá okkur og svo eru minni fyrirtæki eins og hárgreiðslustofur sem nýta sér þetta líka. Við ætlum hins vegar að bjóða upp á sérstaka áskrift fyrir fyrirtæki á næstunni sem gætu til dæmis þurft á stærri rúllum að halda.“ Hann bætir við að fólk geti stjórnað áskriftinni samkvæmt eigin þörfum. Hægt sé að velja eins eða þriggja mánaða áskrift eftir því hvað henti hverjum og einum best og getur fólk svo líka sett áskriftina í pásu ef það er á leiðinni erlendis í þriggja vikna frí. Gyrðir segir að frá og með næsta mánuði verði einnig hægt að panta eldhúsrúllur úr bambus og á næstu misserum vonast hann til að auka vöruframboð með því að bjóða upp á bleyjur og fleiri nauðsynjavörur fyrir heimilið. „Við viljum bara auka þægindi fólks og við sendum líka frítt á höfuðborgarsvæðinu. Svo erum við einnig í samstarfi við Dropp og Póstinn, þannig að allir á Íslandi geta fengið tækifæri til að nýta sér þessa þjónustu.“

Share this article