Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frumsýna nýjan Hilux og Lexus ES

Read Full Article →

Toyota og Lexus munu frumsýna nýjan Toyota Hilux og Lexus ES á laugardaginn. Samhliða því verður einnig rafbílasýning hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ og á Akureyri þar sem öll rafbílalína Toyota verður sýnd. Nýr Hilux, sem er fyrsti rafbíll Toyota sem byggður er á grind, er mörgum Íslendingum að góðu kunnur enda goðsögn í flokki pallbíla. Hinn nýi og rafknúni Hilux býður upp á sömu kosti og dísilútgáfan, góða burðar- og dráttargetu ásamt frábærum torfærueiginleikum. Drægnin er 257 km samkvæmt WLTP staðli og skila rafmótorar bílnum 196 hestöflum. Burðargeta bílsins er jafnframt 715 kg og dráttargetan er 1600 kg. Sjá einnig Lúxusreið á Lexus Nýjasta viðbótin við rafbílalínu japanska lúxusbílaframleiðandans Lexus verður einnig kynnt en það er Lexus ES 500e. Ný kynslóð Lexus ES sameinar fágaðan lúxus, kraftmikla frammistöðu og framsækna hönnun. Nýtt og fallegt útlit bílsins hefur þegar vakið verðskuldaða athygli en bíllinn er fjórhjóladrifinn og skila rafmótorar bílnum alls 343 hestöflum. Bíllinn fer úr 0 í 100 km/klst á aðeins 5,5 sekúndum. Drægnin er allt að 529 km samkvæmt WLTP staðli og með hraðhleðslu er hægt að hlaða úr 10% í 80% á 28 mínútum.

Share this article