Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Byggðakvóti og strandveiðar stuðli að byggðafestu

  • What: Discussion on rural quota system and its impact on local economy
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

„Þegar afli sem byggir á sértækum byggðakvóta er ráðstafað á verði sem er verulega undir viðmiðunarverði Verðlagsstofu skiptaverðs færist hluti þess stuðnings sem ætlaður er bygg.ðarlaginu frá sjómönnum, hafnarsjóðum og öðrum aðilum í samfélaginu til einstakra samningsaðila. Slíkt dregur úr samfélagslegum áhrifum úrræðisins.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í eftirfarandi, ítarlegri umsögn sveitarstjórnar Langanesbyggðar vegna áforma innviðaráðherra um heildarendurskoðun byggðakvótakerfisins: Markmið byggðakvótakerfisins Langanesbyggð telur að meginmarkmið byggðakvótakerfisins eigi að vera að stuðla að byggðafestu með því að skapa forsendur fyrir heilsársatvinnu, veiðum og vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Kerfið þarf að stuðla að því að fólk geti búið og starfað til lengri tíma í sjávarbyggðum sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi. Trygging landana er mikilvægur þáttur þar sem hún skapar grundvöll fyrir atvinnu í landi, styrkir hafnarstarfsemi og stuðlar að verðmætasköpun innan byggðarlagsins. Markmið byggðakvótakerfisins eiga ekki aðeins að vera að tryggja hráefni til vinnslu heldur einnig að tryggja að verðmæti sem skapast við veiðar og vinnslu skili sér sem víðast inn í viðkomandi samfélag. Langanesbyggð telur jafnframt mikilvægt að byggðakvótakerfið styðji við fjölbreytni í sjávarútvegi og tryggi rekstrargrundvöll smærri og meðalstórra útgerða með takmarkaðar eigin aflaheimildir. Slíkar útgerðir gegna víða lykilhlutverki í atvinnulífi sjávarbyggða og eru oft mikilvægur þáttur í byggðafestu, verðmætasköpun og samfélagslegri fjölbreytni. Reynsla af núverandi fyrirkomulagi Reynsla sveitarfélagsins af almennum byggðakvóta hefur almennt verið góð. Honum er úthlutað í hlutfalli við landaðan afla báta í sveitarfélaginu og viðkomandi fiskvinnsla fær tvöfalt magn byggðakvótans til vinnslu. Hafnarsjóður og sjómenn fá greitt miðað við verðlagsstofuverð að lágmarki og framkvæmdin og eftirlit er tiltölulega einfalt. Reynslan af sértækum byggðakvóta er hins vegar misjöfn. Á Raufarhöfn hefur úrræðið stuðlað að heilsársvinnslu í fiskvinnslu og þar með sterkari byggðafestu. Á Bakkafirði hefur starfsemin að stærstum hluta verið bundin við hluta ársins og því haft takmarkaðri áhrif á byggðafestu. Við slíkan samanburð verður að hafa í huga að aðstæður og forsendur eru ekki þær sömu í öllum byggðarlögum. Að mati sveitarfélagsins sýnir reynslan engu að síður að við mat á árangri byggðakvóta þurfi að leggja sérstaka áherslu á hvort úrræðið skapi heilsársstörf og stuðli að varanlegri búsetu. Árstíðabundin störf geta haft jákvæð áhrif á atvinnulíf en skapa almennt ekki sömu byggðaáhrif og stöðug heilsársatvinna. Langanesbyggð vill jafnframt vekja athygli á að hlutfall þorsks í úthlutunum byggðakvóta hefur farið lækkandi undanfarin ár, bæði í almennum og sértækum byggðakvóta. Að mati sveitarfélagsins dregur það úr gagnsemi kvótans fyrir útgerðir og fiskvinnslur. Framtíðarfyrirkomulag kerfisins Langanesbyggð telur heppilegast að byggja áfram á núverandi kerfi en með markvissari útfærslu og skýrari kröfum um samfélagslegan árangur þar sem um sértækan byggðakvóta er að ræða. Sveitarfélagið telur að beinn stuðningur í formi aflaheimilda sé almennt áhrifaríkari en almennur fjárhagslegur stuðningur þar sem hann tengist beint atvinnustarfsemi, veiðum, vinnslu og verðmætasköpun. Við þróun sértæks byggðakvóta telur sveitarfélagið mikilvægt að aflaheimildir fylgi þeim fiskiskipum sem stunda veiðarnar. Tímalengd og fyrirsjáanleiki Langanesbyggð telur að sex ára samningstími sé hæfilegur og skapi gott jafnvægi milli stöðugleika og nauðsynlegrar endurskoðunar. Á samningstíma ætti að fara fram reglulegt mat á því hvort markmið náist án þess að það grafi undan rekstraröryggi þeirra aðila sem starfa á grundvelli samninganna. Árangursmæling og eftirfylgni Mæla ætti árangur byggðakvótakerfisins með skýrum mælikvörðum, svo sem: - Fjölda starfa - Umfang heilsársstarfa - Magn landana - Verðmætasköpun - Þróun íbúafjölda - Byggðafestu Langanesbyggð telur að heilsársstörf eigi að vera einn mikilvægasti mælikvarðinn við mat á árangri byggðakvótakerfisins. Þótt árstíðabundin störf geti haft jákvæð áhrif á atvinnulíf skapa þau ekki sömu forsendur fyrir varanlegri búsetu og byggðafestu. Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að meta hversu stór hluti verðmæta af aflanum skilar sér til sjómanna, hafnarsjóða og annarra aðila í viðkomandi byggðarlagi. Reglugerð nr. 643/2016 byggir á því að sértækur byggðakvóti sé nýttur til að styrkja atvinnu, vinnslu og byggðafestu í þeim byggðarlögum sem standa höllum fæti. Sveitarfélagið telur mikilvægt að árangur samninga sé metinn reglulega út frá þessum markmiðum. Langanesbyggð telur mikilvægt að sveitarfélög hafi formlegt hlutverk við mat á árangri sértæks byggðakvóta og eftirfylgni samninga. Miður er að ákvæði um aðkomu sveitarfélaga að eftirliti og eftirfylgni hafi verið fellt úr reglugerðinni. Endurskoða ætti þá breytingu. Samningsaðilar sem njóta sértæks byggðakvóta ættu að skila árlegri opinberri stöðuskýrslu um framkvæmd samningsins þar sem fram komi upplýsingar um veiðar, vinnslu, fjölda starfa, umfang heilsársstarfa og áhrif á byggðafestu. Sveitarfélög ættu að eiga formlega aðkomu að mati á þeim skýrslum. Almennur byggðakvóti Langanesbyggð telur að almennur byggðakvóti sé eitt mikilvægasta byggðaúrræði sjávarútvegsins og nauðsynlegt að hann verði áfram hluti af kerfinu. Ólíkt sértækum byggðakvóta, sem nýtist takmörkuðum fjölda byggðarlaga og samningsaðila, stendur almennur byggðakvóti til boða fyrir fjölbreyttari hóp útgerða og hefur víða verið mikilvægur þáttur í rekstri smærri og meðalstórra útgerða með takmarkaðar eigin aflaheimildir. Fyrir marga aðila er almennur byggðakvóti eina byggðatengda úrræðið sem þeir hafa raunverulegan aðgang að. Sveitarfélagið telur því mikilvægt að við endurskoðun kerfisins verði staða smærri og meðalstórra útgerða með takmarkaðar eigin aflaheimildir höfð sérstaklega í huga og að breytingar á kerfinu dragi ekki úr möguleikum þeirra til þátttöku. Slíkar útgerðir skapa víða mikilvæg störf og tekjur í sjávarbyggðum, tryggja landanir og stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi. Því telur sveitarfélagið mikilvægt að almennur byggðakvóti verði áfram sjálfstætt og öflugt byggðaúrræði. Langanesbyggð telur mikilvægt að þorskur og ýsa verði áfram meginhluti úthlutana byggðakvóta eftir því sem kostur er, enda eru það þær tegundir sem skapa mest verðmæti, nýtast best í vinnslu og styðja best við stöðuga atvinnu. Sértækur byggðakvóti Langanesbyggð telur að sértækur byggðakvóti geti áfram verið mikilvægt byggðaúrræði þar sem sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Meginreglan ætti að vera sú að sértækur byggðakvóti fylgi þeim fiskiskipum sem veiða aflann, hvort sem skipin eru í eigu viðkomandi vinnslu eða ekki. Langanesbyggð telur jafnframt eðlilegt að skip sem njóta sértæks byggðakvóta leggi til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi verulega meira magn en sem nemur úthlutuðum kvóta. Sveitarfélagið telur að miða ætti við að skip sem fá úthlutaðan sértækan byggðakvóta landi að lágmarki tvöföldu því magni til vinnslu, enda sé tilgangur úrræðisins ekki einungis að tryggja tiltekið magn afla heldur að skapa sem mestan samfélagslegan ávinning í formi atvinnu, vinnslu og byggðafestu. Við mat á árangri samninga um sértækan byggðakvóta ætti meðal annars að horfa til þess hversu mikið viðbótarmagn af hráefni úrræðið skilar til vinnslu umfram úthlutað aflamagn. Reglugerð nr. 643/2016 byggir á því að sértækur byggðakvóti stuðli að atvinnu, vinnslu og byggðafestu. Árangur fyrra samningstímabils ætti að hafa verulegt vægi við ákvörðun um endurnýjun eða framlengingu samninga. Samningsaðilar ættu að skila árlegri opinberri stöðuskýrslu og sveitarfélög að eiga formlega aðkomu að mati á árangri samninganna. Afmörkun þátttöku í kerfinu Langanesbyggð telur að ekki eigi að byggja þátttöku eingöngu á íbúafjölda heldur einnig á vægi sjávarútvegs, atvinnuþróun, fjarlægð frá vinnusóknarsvæðum og öðrum byggðalegum þáttum. Ráðstöfun og skilyrði Vinnsluskylda hefur mikilvægt hlutverk þar sem hún tryggir að verðmætasköpun verði í viðkomandi byggðarlagi. Langanesbyggð telur að meginreglan eigi að vera sú að sértækur byggðakvóti fylgi þeim fiskiskipum sem veiða aflann. Þegar afli sem byggir á sértækum byggðakvóta er ráðstafað á verði sem er verulega undir viðmiðunarverði Verðlagsstofu skiptaverðs færist hluti þess stuðnings sem ætlaður er byggðarlaginu frá sjómönnum, hafnarsjóðum og öðrum aðilum í samfélaginu til einstakra samningsaðila. Slíkt dregur úr samfélagslegum áhrifum úrræðisins og gengur gegn markmiðum þess um að styrkja atvinnulíf, verðmætasköpun og byggðafestu í viðkomandi byggðarlagi. Nýsköpun og þróunarverkefni Langanesbyggð telur að heimilt eigi að vera að nýta afmarkaðan hluta byggðakvótakerfisins til nýsköpunar og þróunarverkefna sem tengjast sjávarútvegi, aukinni verðmætasköpun eða nýjum atvinnumöguleikum í sjávarbyggðum. Forgangsröðun Langanesbyggð telur eftirfarandi atriði mikilvægust við endurskoðun kerfisins: Að tryggja að samfélagslegur ávinningur byggðakvóta skili sér til sjómanna, hafnarsjóða og atvinnulífs í viðkomandi byggðarlagi. 2. Að leggja aukna áherslu á heilsársstörf og byggðafestu við úthlutun og mat á árangri. 3. Að tryggja áfram sterka stöðu almenns byggðakvóta sem mikilvægs stuðnings við smærri og meðalstórar útgerðir með takmarkaðar eigin aflaheimildir sem hafa ekki aðgang að sértækum byggðakvóta. Önnur sjónarmið Langanesbyggð telur mikilvægt að við endurskoðun byggðakvótakerfisins verði einnig horft til samspils þess við strandveiðakerfið og önnur byggðaúrræði í sjávarútvegi. Sveitarfélagið telur að afnám svæðaskiptingar aflaheimilda til strandveiða hafi komið illa niður á smábátaútgerð á Norðausturlandi og dregið úr getu strandveiðakerfisins til að styðja við byggðafestu í sjávarbyggðum. Markmið strandveiðakerfisins ætti, líkt og byggðakvótakerfisins, að vera að styðja við búsetu og atvinnu í sjávarbyggðum fremur en að vera almennt aðgengilegt tekjuaukaverkefni óháð búsetu og te

Share this article