- What: New information management department at Landsbanki
- Impact: Internal organizational change
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá upplýsingamiðlunardeild Landsbankans og hefur þegar hafið störf. Um er að ræða nýja deild innan bankans sem sér um að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun. Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að staðan hafi verið auglýst í apríl og var Laufey Rún valin úr stórum hópi umsækjenda. Laufey Rún er lögfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík (ML) og Háskóla Íslands (BA) og hefur víðtæka reynslu af upplýsinga-, kynningar- og samskiptamálum. Sjá einnig Laufey Rún og Lísa Anne til SFS Undanfarin ár var Laufey Rún upplýsingafulltrúi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, verkefnastjóri og aðstoðarmaður þingflokks á Alþingi, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og blaðamaður á Morgunblaðinu. Samhliða námi og starfi hefur Laufey Rún einnig sinnt ýmsum félagsstörfum á sviði stjórnmála.