Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kristín Gunnarsdóttir ráðin til Landsbankans

  • What: Kristín Gunnarsdóttir has been appointed as the head of Information Services, a new department within Communications and Culture at Landsbankinn.
  • Impact: The new department will be responsible for communications, public relations, analysis dissemination, and external education for the bank.
Read Full Article →

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar sem er ný deild á sviði Samskipta og menningar hjá Landsbankanum. Undir deildina falla samskiptateymi og greiningardeild Landsbankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbankanum er markmið nýju deildarinnar að efla upplýsingamiðlun bankans og mun hún bera ábyrgð á samskiptum, almannatengslum, miðlun greininga og ytri fræðslu. Kristín er landsmönnum best kunnug sem önnur af stjórnendum hlaðvarpsins Komið gott sem hún stjórnar ásamt Ólöfu Skaftadóttur. Hlaðvarpið hefur síðustu ár verið eitt það vinsælasta á landinu. Kristín er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín og stundar nám til MA-gráðu í Digital Innovation and Strategic Leadership við Hyper Island Stokkhólms/Teesside háskólann.

Share this article