Kristín Gunnarsdóttir hóf störf í síðustu viku sem forstöðumaður Upplýsingamiðlunar hjá Landsbankanum en um er að ræða nýja deild á sviði samskipta og menningar sem tók til starfa í síðasta mánuði. Undir deildina falla samskiptateymi og greiningadeild bankans og mun Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, áfram leiða greiningarteymið innan deildarinnar. Kristín hefur víðtæka reynslu af samskiptum á breiðum grunni en hún hefur starfað á mörkum fyrirtækja og fjölmiðla og unnið náið með stjórnendum að því að móta orðræður og stefnumiðuð samskipti. Hún er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín en námsferill hennar hófst við Menntaskólann í Reykjavík þar sem hún var á eðlisfræðibraut. Nánar er fjallað um Kristínu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .