Paragvæinn Miguel Almiron varð fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að vera rekinn út af fyrir að hylja munn sinn þegar hann talar við mótherja. Almiron fékk reisupassann rétt fyrir hálfleik eftir samskipti sín við Mert Muldur, leikmann Tyrkja. Paragvæar héldu hins vegar út og unnu 1-0 sigur. Þar með eru Tyrkir úr leik þar sem þeir geta ekki náð þriðja sætinu. Muldur minnti dómara leiksins samstundis á þessa nýju reglu. Hann fór í skjáinn til að meta atvikið og lyfti réttilega rauða spjaldinu. Ivan Barton frá El Salvador gerði allt hárrétt. Atvikið má sjá hér. Miguel Almiron leikmaður Paragvæ varð í nótt sá fyrsti í sögunni til að hljóta rautt spjald fyrir að hylja munn sinn. Hann sagði einhver vel valin orð við Mert Muldur, leikmann Tyrkja í leik liðanna á HM í fótbolta. Reglan er ný. Ný regla Reglan var sett á í kjölfar umdeilds atviks í Meistaradeild Evrópu í vor. Reglan var sett á í apríl og hefur í fyrsta sinn verið gild á HM í ár. Gianluca Prestianni, kantmaður Benfica, huldi munn sinn í orðaskiptum við Vinicius Jr., leikmann Real Madrid. Argentínumaðurinn Prestianni var ásakaður um kynþáttafordóma en hann neitaði því. Eftir rannsókn var hann fundinn sekur um ummæli sem voru fordómafull í garð samkynhneigðra og fékk hann þriggja leikja bann. Hinn seinheppni Almiron - annað skipti sem hann verður fyrir nýrri reglu Þetta er ekki fyrsta nýja reglan sem Almiron verður fyrir barðinu á. Í fyrsta leiknum gegn Bandaríkjunum var „mistaken identity“-reglan nýtt. Hún er hugsuð til að hleypa dómara í VAR-myndbandsskjáinn ef rangur leikmaður fær spjald. Tim Ream, varnarmaður Bandaríkjanna, fékk gult spjald fyrir að tækla Almiron. Hann snerti hann hins vegar ekki og endursýningar sýndu að Almiron dýfði sér. Dómari leiksins sneri því ákvörðuninni og gaf Almiron spjaldið.