Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Tyrkland — Paragvæ

Read Full Article →

Paragvæ vann Tyrkland 1-0 í leik liðanna í D-riðli sem fram fór í nótt. Mark Paragvæ kom strax í upphafi leiks þegar Matias Galarza skoraði glæsilegt mark fyrir utan teig. Þetta er sneggsta markið á HM í ár en það kom eftir 64 sekúndur. Miguel Almiron, leikmaður Paragvæ, fékk rautt spjald skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Spjaldið fékk hann fyrir að hylja andlit sitt þegar hann talaði við andstæðing sinn Mert Mulder. Slíkt er bannað en ný regla var tekin upp eftir að Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, huldi andlit sitt í samskiptum við Vinícius Júnior, leikmann Real Madrid, fyrr á þessu ári. Tyrkir sóttu hart fram í leiknum en það skilaði ekki tilætluðum árangri. Tyrkir eru þó neðstir í riðlinum og eru úr leik þar sem þeir geta ekki náð þriðja sætinu.

Share this article