Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fært sig yfir í kælivökva

Read Full Article →

Verne, sem rekur eitt stærsta gagnaver landsins á Ásbrú í Reykjanesbæ, hefur á síðasta eina og hálfa ári tilkynnt um stóra samninga við gervigreindarinnviðafyrirtækin Nscale og Nebius um uppsetningu á annars vegar 15 MW klasa með um 4.600 Nvidia Blackwell Ultra-örgjörvum og hins vegar 10 MW klasa fyrir Nvidia H200 örgjörva. Meðal viðskiptavina Nscale eru Microsoft og OpenAI. Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne, segir að fyrirtækið hafi verið í stöðugum vexti fyrsta áratuginn í rekstri en gervigreindin hafi haft í för með sér nýja eftirspurn sem bættist ofan á þá sem var þegar til staðar. „Það sem er áhugavert við þessa breytingu sem fylgir gervigreindinni er þéttileikinn, þ.e. hversu mikill búnaður er í hverjum tölvurekka. Gervigreindarvinnsla þarfnast raunar enn meiri þéttileika en ofurtölvuvinnsla krefst,“ segir hann og bætir við að gagnaver þurfi í raun að koma til laga innviði sína að búnaði Nvidia. „Samhliða auknum þéttileika hafa gagnaver þurft að endurhugsa kælingu á búnaði. Gagnaver höfðu þar til nýlega treyst nánast alfarið á loftkælingu en á misserum hafa þau verið að færa sig út í vökvakælingu þar sem vökvi er betri miðill til þess að flytja hita í burtu heldur en loft.“ Kælibúnaður á þaki gagnaversins. Veðuraðstæður á Íslandi eru taldar hagfelldar fyrir kælingu gagnavera. © Aðsend mynd (AÐSEND) Í gagnaverinu á Ásbrú er búið að koma upp lokuðu varmaskiptakerfi sem leiðir kælivökva beint inn á tölvubúnað. Þegar tilkynnt var um samstarf Verne og Nscale var tekið fram að uppsetningin á í viðkomandi gagnasal miði við 85% vökvakælingu og 15% loftkælingu. Framlenging af kælikerfinu fyrir utan gagnasalina. © Aðsend mynd (AÐSEND) Landfræðileg staða Íslands gerir rekstur gagnavera hér á landi hagkvæma út frá loftkælingu. Einn helsti mælikvarðinn hversu hátt hlutfall orkunotkunar fer í að keyra gagnasali gagnavera nefnist PUE (Power Usage Effectiveness). Í tilviki gagnavers Verne á Ásbrú er hlutfallið 1,2 sem þýðir að fyrir hvert vatt sem fer beint í tölvusalinn þarf 0,2 vött fyrir annan stoðbúnað eins og kælibúnað. Til samanburðar er meðaltalið er um 1,36 hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins, samkvæmt skýrslu sem gefin var út í fyrra. Hlutfallið er þó mjög breytilegt eftir landsvæðum og stærð gagnavera. Fréttin er hluti af viðtali við Styrmi um starfsemi Verne í Viðskiptablaðinu sem kom út miðvikudaginn 24. júní 2026. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild inni hér og annað efni úr blaðinu hér . Gagnaver Verne er rekið í húsnæði þar sem áður var herstöð NATO. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article