Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kortleggja vaxtartækifærin

Read Full Article →

Samkomulag ­hefur náðst um samruna Bláa Lónsins og ­Arctic Adventures. Sigríður Margrét Odds­dóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir við­skiptin fyrst og fremst ­strategísk. Að sögn Sigríðar Margrétar hefur Bláa lónið markað sér skýra sýn og er unnið markvisst að því að koma henni í framkvæmd. „Við erum búin að móta þau lykilverkefni sem við ætlum að vinna að á næstu fimm til tíu árum og höfum skilgreint mjög vel þá verðmætauppbyggingu sem við sjáum fyrir okkur. Hún verður bæði með bestun á því sem við erum að vinna að í dag og með þróun og uppbyggingu á nýjum áfangastöðum og ­nýjum verk­efnum,“ segir Sigríður Margrét. Hún nefnir meðal annars í því samhengi fyrirhugaða uppbyggingu í Þjórsárdal, sem er stærsta einstaka fjárfestingin í íslenskri ferða­þjónustu um þessar mundir. Ytri vöxtur muni þá spila stórt hlutverk. „Við erum fyrst og fremst að horfa til ytri vaxtartækifæra sem passa við sýn okkar, þar sem er þessi strategíska samlegð. Við höfum svo sannarlega verið að kortleggja hvar tækifærin geta legið á þeirri vegferð.“ Spurð út í stöðu ferðaþjónustunnar segir Sigríður Margrét að þótt teikn séu á lofti á ýmsa mælikvarða hafi hún mikla trú á styrkleika og sérstöðu Íslands. „Í tölunum sem eru að birtast akkúrat núna sjáum við að ferðaþjónustan er að halda velli. Við erum með ­óbreyttan fjölda ferðamanna, gisti­nóttum fjölgar örlítið, kortavelta erlendra ferðamanna eykst og alþjóðlegur ferðavilji er mjög mikill. Vissulega koma alltaf upp áskoranir en allar áskoranir eru þess ­eðlis að það þarf að finna leið til þess að snúa þeim yfir í tækifæri, við erum þeim megin í lífinu.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article