Samkomulag hefur náðst um samruna Bláa Lónsins og Arctic Adventures. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir viðskiptin fyrst og fremst strategísk en markmið Bláa Lónsins sé að leiða uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetji Ísland sem einn af fremstu áfangastöðum í heiminum þegar kemur að upplifun og vellíðan. Í dag er Bláa Lónið móðurfélag ýmissa fyrirtækja á sviði upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðunar, en Arctic Adventures er leiðandi á sviði ævintýra- og afþreyingarþjónustu. Samstæða Bláa Lónsins velti 156,1 milljón evra árið 2025, eða um 22,6 milljörðum króna, en um var að ræða 35,6% aukningu frá árinu 2024. Samstæða Arctic Adventures velti 11,8 milljörðum króna í fyrra, sem var 23,6% aukning milli ára. „Við erum þess vegna með þessum viðskiptum að fjölga tekjustoðum innan Bláa Lónsins. Það er auðvitað samlegð líka, bæði þegar kemur að rekstri og þjónustu við viðskiptavini. Þannig að frá okkar bæjardyrum séð marka þessi viðskipti fyrst og fremst mikilvægt skref í átt að framtíðarsýn okkar,“ segir Sigríður Margrét. „Við erum með þessum viðskiptum að gefa alveg skýr skilaboð um það að við ætlum okkur að halda áfram að leiða uppbyggingu og fjárfestingar í upplifun og vellíðunarferðaþjónustu á Íslandi.“ Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna. „Eftir þennan samruna verður til mjög öflugt íslenskt fyrirtæki sem er að keppa á alþjóðlegum mörkuðum, við teljum að félagið verði betur í stakk búið til að keppast um athygli ferðamanna í alþjóðlegri samkeppni. Til framtíðar lítum við til þeirra geira sem við störfum innan og með hvaða hætti við viljum sjá Ísland þróast sem áfangastað,“ segir Sigríður Margrét. Bláa Lónið hefur hafið formlegan undirbúning að skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað, en stefnt er á skráningu á þessu ári. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .