Viðskipti | mbl | 16.6.2026 | 14:26 Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Bláa lónið hf. hefur skrifað undir samkomulag um samruna við Arctic Adventures hf. Er samkomulagið gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna. „Bláa lónið er móðurfélag öflugra og leiðandi fyrirtækja á sviði upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðunar á meðan Arctic Adventures sérhæfir sig á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli,“ segir í fréttatilkynningu. Með sameiningunni verði til kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki sem verði leiðandi afl í rekstri og þróun íslenskrar upplifunar- og vellíðunarferðamennsku. Tímamót fyrir Arctic Adventures Samanlagðar tekjur félaganna á árinu 2025 voru um 34,3 milljarðar króna og samanlagður fjöldi stöðugilda um 1.120. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Bláa lóninu er 780 og hjá Arctic Adventures 340. „Þetta eru tímamót fyrir Arctic Adventures. Bláa lónið hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki Íslands á alþjóðavísu og með sameiginlegum styrk félaganna skapast einstakt tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar,“ er haft eftir Ásgeiri Baldurs, forstjóra Arctic Adventures. „Við hlökkum til að taka þátt í þeirri vegferð og styrkja enn frekar stöðu Íslands sem áfangastaðar í harðri samkeppni á alþjóðlegum ferðaþjónustumarkaði.“ Bláa lónið hefur nú hafið formlegan undirbúning að skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sleppur hlaðvarpið við ríkisafskipti? Sigurður Már Jónsson Flugið og íþyngjandi regluverk ESB Fleira áhugavert Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf „Lögreglan þarf að vera sýnileg“ Vongóður um að viðræður þokist áfram Fátíður en sláandi atburður Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Útboð SpaceX stærra en áætlað var 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech HM-treyjurnar seldust upp Hopp og Orkureiturinn í samstarf Dýpkar tengsl milli landanna Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Polaris orðið virkt varakerfi Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Polaris orðið virkt varakerfi Dýpkar tengsl milli landanna Hopp og Orkureiturinn í samstarf Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Landsbankinn og Monerium í samstarf Arctic Adventures og Kynnisferðir falla frá samruna 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech Verður Musk billjónamæringur í dag? Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Seðlabanki Evrópu hækkar stýrivexti Ármann hefur ákveðið að láta af störfum Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Seðlabanki Evrópu hækkar stýrivexti Landsbankinn og Monerium í samstarf Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan 5% arðsemi ekki ofurhagnaður Olíuverð lækkaði eftir yfirlýsingu Trump Tókust á um bankaskatt: „Það er nóg til“ Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög Beint: Enn hærri skattar, til hvers? Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sleppur hlaðvarpið við ríkisafskipti? Sigurður Már Jónsson Flugið og íþyngjandi regluverk ESB Fleira áhugavert Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Skæð inflúensa olli miklu álagi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Útboð SpaceX stærra en áætlað var 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech HM-treyjurnar seldust upp Hopp og Orkureiturinn í samstarf Dýpkar tengsl milli landanna Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Polaris orðið virkt varakerfi Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Polaris orðið virkt varakerfi Dýpkar tengsl milli landanna Hopp og Orkureiturinn í samstarf Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Landsbankinn og Monerium í samstarf Arctic Adventures og Kynnisferðir falla frá samruna 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech Verður Musk billjónamæringur í dag? Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Seðlabanki Evrópu hækkar stýrivexti Ármann hefur ákveðið að láta af störfum Þriggja metra háir ísjakar í brottfararversluninni Seðlabanki Evrópu hækkar stýrivexti Landsbankinn og Monerium í samstarf Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan 5% arðsemi ekki ofurhagnaður Olíuverð lækkaði eftir yfirlýsingu Trump Tókust á um bankaskatt: „Það er nóg til“ Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög Beint: Enn hærri skattar, til hvers?