Innlent | mbl | 21.6.2026 | 17:47 „Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að gera í dag“ Um 80 manns mættu að mótmæla í dag. mbl.is/Hákon Setja bókamerki Hvalavinir efndu til mótmæla við Reykjavíkurhöfn í dag en hvalveiðiskipin Hvalur 8 og 9 héldu til veiða fyrr í vikunni. „Það hefur náttúrulega ekki þurft að mótmæla í nokkur ár vegna þess að það hefur ekki verið farið út á veiðar í nokkur ár,“ segir Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina, í samtali við mbl.is. Það hafi verið gott að hrista hópinn saman. Fyrir mótmælin var haldin skiltagerð í Hafnarhúsinu og gengið þaðan að Reykjavíkurhöfn þar sem bátarnir eru venjulega. Þar voru svo haldnar ræður og almenn umræða um málefnið fór fram. Mótmælin í dag eru þau fyrstu í nokkur ár. mbl.is/Hákon Frétt af mbl.is Héldu til veiða í gærkvöldi Fyrstu mótmæli í nokkur ár Valgerður segir um 80 manns hafa mætt sem megi teljast mjög gott á þessum árstíma. „Það er mjög mikilvægt að þeir sem láta sig hvalina varða hittist og finni samstöðuna hver hjá öðrum. Mjög mörgum er annt um þetta málefni.“ Hún segir aðalákall mótmælenda vera að stjórnvöld geri eitthvað í hvalveiðum. Þau séu búin að reyna allar lýðræðislegar leiðir. „Kannanir sýna að meirihluti Íslendinga er á móti þessum veiðum. Einnig hefur verið sýnt fram á að við erum að tapa á þessum veiðum efnahagslega. Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að gera í dag og við köllum eftir því að stjórnvöld hafi hugrekki til að stöðva þetta.“ Drápsaðferðirnar sem notast er við hvalveiðar kallar hún brot á lögum um velferð dýra. Stjórnvöld þurfi að standa í lappirnar og vernda hvalina fyrir ónauðsynlegum drápum og pyndingum. Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina. mbl.is/Hákon Hólmsteinn mætti að mótmæla Stutt er síðan mótmæli Hólmsteins Harðarsonar vöktu mikla athygli þegar hann kom sér fyrir í tunnu mastursins á hvalveiðiskipinu Hval 9. Þá var hann skráður sem farþegi skipsins og siglt af stað með hann enn um borð frá Reykjavíkurhöfn til Hvalfjarðar. Þá vildi Hólmsteinn meina að hann hefði ekki vitað hverju hann hafi verið að svara er hann var beðinn um upplýsingar sem áhöfn skipsins notaði til þess að skrá hann sem farþega. Hann var viðstaddur mótmælin í dag. Valgerður segir að gott hafi verið að sjá Hólmstein á mótmælunum, hann sé brattur enda „einstaklega mikill rólyndismaður“. Hún dáist að jafnaðargeði hans miðað við það sem hann gekk í gegnum. Hólmsteinn Harðarsson virðist brattur eftir umtalaða óumbeiðna siglingu á dögunum. mbl.is/Hákon Frétt af mbl.is Sigldu af stað með Hólmstein uppi í mastrinu Frétt af mbl.is Engar kærur borist vegna uppátækis Hólmsteins mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að gera í dag“ Öruggt hjá Selfyssingum - Sterkur útisigur HK Spánn - Sádi-Arabía, staðan er 4:0 Handtekinn við tjörnina: „Hver myndi gera slíkt?“ Martin meistari í Þýskalandi Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert JD Vance kominn til Sviss: Viðræður hefjast í dag „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Banaslys austan við Vík í gær Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Banaslys austan við Vík í gær „Ekki góðar fréttir af kríunni“ Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að gera í dag“ Öruggt hjá Selfyssingum - Sterkur útisigur HK Spánn - Sádi-Arabía, staðan er 4:0 Handtekinn við tjörnina: „Hver myndi gera slíkt?“ Martin meistari í Þýskalandi Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti JD Vance kominn til Sviss: Viðræður hefjast í dag Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri Banaslys austan við Vík í gær Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Banaslys austan við Vík í gær „Ekki góðar fréttir af kríunni“ Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna