Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lamine Yamal er mættur á HM

Read Full Article →

Hinn 18 ára gamli Lamine Yamal skoraði sitt fyrsta mark á HM í dag. Þetta var hans áttunda landsliðsmark í 27 landsleikjum. Yamal var meiddur í aðdraganda móts og byrjaði út af gegn Grænhöfðaeyjum. Hann byrjaði hins vegar í 4-0 sigri gegn Sádi-Arabíu. Sádar ætluðu sér að stöðva hann og byrjuðu með tvo menn í vinstri bakverði til að stöðva hann. Þá þrefölduðu þeir á hann á köflum en það gekk ekki. Þetta var afar öruggt. Spánverjar komu sér í 4-0 forskot í upphafi seinni hálfleiks og slökuðu bara á. Þeir vildu ekki eyða of mikilli orku í þetta. Sádi-Arabía ógnaði spænska markinu nánast ekki neitt. Lamine Yamal skoraði fyrsta markið eftir undirbúning Oyarzabal. Yamal lúrði á fjærstönginni og kom boltanum yfir línuna af stuttu færi. Oyarzabal skoraði svo tvö. Staðan var 3-0 í hálfleik og de la Fuentes, þjálfari Spánar, var svo öruggur með stöðuna að hann tók markaskorarana tvo út af. Fjórða markið var sjálfsmark eftir skot Cucurella. Spánverjar eru með meirapróf í stórmótum og voru ekkert að stressa sig á framhaldinu. Eins og staðan er núna mæta Spánverjar Austurríkismönnum í 32-liða úrslitum. Erfitt er hins vegar að lesa of mikið í stöðuna þar sem einungis hefur verið leikið einn leikur í sumum riðlum. Úrúgvæ mætir Argentínu, sem yrði rosaleg nágrannaviðureign, og Sádar mæta Mexíkó. Með boltann: Spánn 67,1% - Sádar 32,9% Skot : Spánn 22 - Sádar 3 Snertingar í teig Spánn 36 - Sádar 2 Mörkin úr leiknum Spánverjar unnu 4-0 sigur gegn Sádi-Arabíu í kvöld. Ungstirnið Lamine Yamal skoraði sitt fyrsta mark á HM. Ef allt gengur upp verða þau eflaust fleiri.

Share this article