Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kaldhæðni örlaganna – þegar Messi baðaði Yamal

Read Full Article →

Fótboltakapparnir Lionel Messi og Lamine Yamal mætast í úrslitum heimsmeistarakeppninnar á sunnudaginn þegar Argentína og Spánn etja kappi um stóra titilinn. Kapparnir hafa ekki áður mæst í fótboltaleik en þó hafa þeir hist á öðrum vettvangi og það fyrir alllöngu. Raunar baðaði Messi Yamal fyrir um 19 árum. Árið 2007 stóðu spænska stórliðið Barcelona og spænska dagblaðið Diario Sport fyrir sölu á dagatali sem selt var til styrktar UNICEF. Á myndum dagatalsins sátu leikmenn fyrir með ungum börnum. Fjölskyldur barna sóttu um í happdrætti og fengu vinningshafarnir að sitja fyrir á myndum með leikmönnum Barcelona. Paraðir saman fyrir tilviljun Fyrir tilviljun var ung og upprennandi stjarna, síðar Barcelona goðsögn, Lionel Messi settur með 5 mánaða dreng að nafni Lamine Yamal. Ferill Messi hjá Barcelona var tiltölulega nýhafinn og er hann aðeins tvítugur þegar myndin er tekin. Joan Monfort, ljósmyndarinn sem tók myndina, segir Messi hafa verið heldur feiminn og hlédrægan til þess að byrja með. Að lokum tókst honum þó að smella af nokkrum ágætum myndum fyrir dagatalið. „Upphaf tveggja goðsagna“ Lamine Yamal reis fljótt upp á stjörnuhimininn en í dag leikur hann sjálfur með Barcelona. Árið 2024 varð Yamal yngsti leikmaður til þess að spila með landsliði Spánar. Yamal gegndi lykilhlutverki í sterku liði Spánar á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi 2024 og varð hann yngsti leikmaður til þess að skora á Evrópumeistaramótinu. Spánverjar urðu svo Evrópumeistarar eftir 2-1 sigur á Englandi. Faðir Yamal, Mounir Nasraoui, birti þá umrædda mynd á samfélagsmiðlum með yfirskriftinni „Upphaf tveggja goðsagna.“ Myndirnar hafa svo sannarlega farið aftur á flug seinustu daga og er það kaldhæðni örlaganna að Yamal og Messi skuli nú aftur mætast eftir 19 ár, nema nú í úrslitum heimsmeistaramótsins.

Share this article