Oracle, eitt stærsta hugbúnaðar- og skýjaþjónustufyrirtæki heims, sagði upp 21.000 starfsmönnum á heimsvísu á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef BBC en þar er vitnað í nýjustu ársskýrslu fyrirtækisins. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins var 141.000 þann 31. maí sl., samanborið við um 162 þúsund á sama tíma í fyrra og samsvarar þróunin rúmlega 13% fækkun hjá Oracle. Samkvæmt ársskýrslunni má rekja niðurskurðinn til innleiðingar gervigreindartækni í rekstri fyrirtækisins. Oracle greiddi jafnframt um 1,8 milljarða dala í starfslokasamninga og endurskipulagningarkostnað árið 2025, miðað við 374 milljónir árið 2024. Sjá einnig Ellison tekur fram úr Musk sem ríkasti maður heims Oracle hefur verið í harðri samkeppni við fyrirtæki eins og OpenAI og Meta í uppbyggingu gagnavera. Áætlað er að fyrirtækið muni eyða minnst 50 milljörðum dala í innviðauppbyggingu á þessu ári.