Larry Ellison, annar stofnenda Oracle, hefur hætt við áform um að selja hlutabréf í tæknisrisanum fyrir allt að 7,5 milljarða dala eða sem nemur allt að 900 milljörðum króna. Fyrirtækið greindi frá því um helgina að Ellison, sem er sjöundi ríkasti maður heims, hefði ákveðið að hætta við sölu á hlutabréfum í Oracle eftir að upplýst hafði verið á föstudaginn um að hygðist selja allt að 50 milljónir hlutabréfa fyrir lok október næstkomandi. Umrædd söluáætlun var sett upp í júní síðastliðnum. „Engin hlutabréf í Oracle voru seld samkvæmt þeirri söluáætlun og hann hefur engin önnur áform um að selja hlutabréf sín í Oracle,“ sagði Oracle í yfirlýsingu. Hugbúnaðarfyrirtækið vildi ekki upplýsa um hvað liggi að baki ákvörðun Ellison, að því er segir í frétt Financial Times . Hlutabréfaverð í Oracle hefur lækkað um meira en helming frá því að fyrirtækið greindi frá 300 milljarða dala samningi við OpenAI í september 2025. Heimildarmaður nákominn Ellison sagði við FT að auðkýfingurinn teldi hlutabréf félagsins vera vanmetin. Viðkomandi vildi ekki segja hvort Ellison hygðist kaupa fleiri hlutabréf á næstu mánuðum