Hlutabréfamarkaðir lækkuðu víða um heim í gær en tæknifyrirtæki leiddu lækkanirnar. Áhyggjur fjárfesta af hækkun vaxta í Bandaríkjunum og mikil lækkun á hlutabréfum SpaceX litaði markaði. Mesta athyglin beindist að SpaceX í gær, en hlutabréf félagsins féllu um 16% og markaðsvirði þess lækkaði um 400 milljarða dala. Samkvæmt greiningu Financial Times er þetta næstmesta verðfall sem nokkurt félag hefur orðið fyrir á einum degi. Sjá einnig Mesta lækkun á markaðsvirði eins félags í sögunni Markaðsvirði SpaceX endaði í um 2 þúsund milljörðum dala, samanborið við nærri þá 3 þúsund milljarða dala þann sem það stóð í 16. júní síðastliðinn. Framvirkir samningar tengdir Nasdaq 100 vísitölunni bentu til þess að hún muni lækka um 2,5% við opnun markaða vestanhafs. Aða sama skapi er útlit fyrir 1,3% lækkun á S&P 500 vísitölunni. Í Asíu lækkaði kóreska Kospi-vísitalan um 10 prósent í morgun. Í Evrópu hefur Stoxx 600 lækkað um 0,9% og OMXI15 vísitalan í íslensku Kauphöllinni hefur lækkað um 0,65% það sem af er dags. Sérfræðingar segja að markaðurinn vestanhafs glími nú við tvíþættan vanda: annars vegar vaxandi efasemdir um gervigreindaruppsveifluna og hins vegar sterkan hagvöxt í Bandaríkjunum, sem auki líkur á hærri vöxtum og geri áhættuminni fjárfestingar aðlaðandi. Áhyggjur jukust eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna, undir stjórn Kevins Warsh, gaf til kynna að vaxtahækkun gæti verið nauðsynleg til að hemja verðbólgu. Fjárfestar búast nú við að vextir verði hækkaðir um 0,25 punkta fyrir október á þessu ári.