Innlent | Morgunblaðið | 24.6.2026 | 8:00 Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Grímur var yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar rannsókn á málinu hófst. mbl.is/Karítas Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar er þeirrar skoðunar að tilefni sé til þess að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga um hryðjuverk. Morgunblaðið ræddi við Grím um dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða sem féll fyrir helgi þar sem Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru sýknaðir af ákæru vegna tilraunar til hryðjuverka. Þeir voru þó sakfelldir fyrir stórfelld vopnalagabrot. Grímur var yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar rannsókn á málinu hófst. Í dómnum segir að við upphaf rannsóknar lögreglu hafi ýmislegt komið fram sem ekki gaf raunsanna mynd af málinu. Meðal annars hafi fréttatilkynning ríkislögreglustjóra vegna málsins verið villandi. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur velti því upp í viðtali við mbl.is fyrir helgi hvort lögregla hefði farið offari þegar hún réðst í handtökur á mönnunum í september 2022. Í ljósi niðurstöðu dómsins hefðu aðrar aðferðir dugað til, til dæmis með því að fylgjast lengur með ferðum þeirra og samskiptum. „Allar aðgerðir orka auðvitað tvímælis en þarna hefur mat ríkislögreglustjóra verið þannig að það þyrfti að grípa inn í á þessum tíma. Það er svo örugglega auðvelt að gagnrýna það með allar upplýsingar eftir á,“ segir Grímur, spurður út í það hvort hann telji að lögregla hafi farið offari. Segist Grímur eiga von á því að verklag hafi verið rýnt hjá öllum þeim aðilum sem komu að rannsókn málsins, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara, og að ef slíkt mál kæmi upp aftur væri hægt að horfa til reynslunnar sem fékkst við rannsókn þessa máls. Grímur telur brýnt að ákvæði hegningarlaga er varða hryðjuverk verði endurskoðuð. „Ég ætla ekkert endilega að meta það sjálfur hvort það eigi að breyta lögum til þess að þau nái utan um svona brot en ég held að það sé klárt tilefni til þess að taka það til skoðunar hvort það þurfi að breyta þessum kafla hegningarlaga.“ Grímur segist ekki sjálfur ætla að beita sér fyrir því á Alþingi að ákvæðin verði endurskoðuð. Sú vinna þurfi að fara fram hjá dómsmálaráðuneytinu en ekki að frumkvæði alþingismanns. Hryðjuverkaákvæðið, sem Sindra og Ísidóri var í ákæru gefið að sök að hafa brotið gegn, hafði ekki áður komið til kasta dómstóla. Helst hefur reynt á það fyrir dómstólum hvort þeir hafi ótvírætt sýnt ásetning til hryðjuverka í verki, sem er forsenda sakfellingar fyrir tilraunarbrot. Málinu loksins lokið? Ákvörðun ekki tekin Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í málinu. Ákæruvaldið hefur fjórar vikur til að áfrýja málinu til æðsta dómstigs landsins. Hæstiréttur hefur áður tekið málið til meðferðar en í mars ómerkti dómstóllinn fyrri sýknudóm Landsréttar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sprungur í vængjum Airbus-þota Valinn fyrstur í nýliðavalinu Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Draumagisting á afskekktum stað í Berufirði Hola í höggi í fjórða skipti Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Væta víða um land fram undan Myndi kosta rúman milljarð á ári Norðmenn fylgjast grannt með íslenskri umræðu Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Andlát: Hjörtur Guðnason Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Kannast ekki við að beita bolabrögðum Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla Rafmagnslaust í miðbænum „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Sprungur í vængjum Airbus-þota Valinn fyrstur í nýliðavalinu Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Draumagisting á afskekktum stað í Berufirði Hola í höggi í fjórða skipti Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ófyrirsjáanleiki Trumps vandamál Norðmenn fylgjast grannt með íslenskri umræðu Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Andlát: Hjörtur Guðnason Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Kannast ekki við að beita bolabrögðum Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla Rafmagnslaust í miðbænum „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn