Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Taka á móti fimmfalt meiri orku

Read Full Article →

Gagnaversfyrirtækið Verne, sem rekur eitt stærsta gagnaver landsins á Ásbrú í Reykjanesbæ, tók á dögunum í notkun n‎ýtt 1.500 fermetra spennuvirki sem mun skila allt að 240 MW af uppsettu afli í lok árs. Nýja tengivirkið er í eigu fyrirtækisins og er þar með eitt stærsta mannvirki sinnar tegundar í einkaeigu á landinu. Áður hafði Verne notast við 45 MW tengivirki Landsnets. „Bara út frá spennuvirkinu getum við því tekið á móti fimmfalt meiri orku. Það er vísbending um hvað við ætlum okkur á næstu misserum,“ segir Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne á Íslandi, í viðtali í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Verne á bæði spennuvirkið sjálft og strengina sem liggja að tengivirki Landsnets. Heildarfjárfesting verkefnisins nemur yfir 3 milljörðum króna. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá miðju ári 2023. Styrmir segir að Verne hafi lengi horft til þess að reka sitt eigið spennuvirki. „Okkur ber skylda að tryggja 100% uppitíma á búnaði viðskiptavina okkar. Við höfum því starfað eftir svokallaðri N-1 hugmyndafræði sem felur í sér að við höfum svigrúm til að missa út eitt kerfi eða spenni, t.d. vegna viðhalds, án þess að það hafi áhrif á reksturinn. Að sama skapi höfum við með nýja spennivirkinu betri stjórn á því hvernig við tökum á móti raforku frá Landsneti og dreifum henni innan okkar svæðis.“ Viðskiptablaðið hefur áður fjallað um áform Verne um stækkun á gagnaveri sínu á Ásbrú, sem töfðust þó vegna krefjandi stöðu á íslenskum raforkumarkaði á árunum 2021-2024. Aðspurður segir Styrmir Verne, sem var keypt af innviðasjóði Ardian vorið 2024, ekki tilbúið að greina frá næstu skrefum enn sem komið er. Hann bætir þó við að framtíðin sé björt og mikil eftirspurn sé til staðar eftir gagnaversplássi á Íslandi. Fréttin er hluti af viðtali við Styrmi um starfsemi Verne í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild inni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article