Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gætu skapað þúsund störf

Read Full Article →

Gagnaver Verne í Reykjanesbæ er meðal þeirra stærstu á Íslandi en undanfarin ár hefur verið unnið að stækkun gagnaversins. Nýverið var nýtt 240 MW spennuvirki tekið í notkun sem skapar grunn fyrir frekari uppbyggingu. Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne, segir að nú sé til skoðunar verkefni sem fæli í sér stækkun um 120 MW. Ljóst er að verkefnið muni kalla á talsvert vinnuafl en reiknað er með því að verði verkefnið að veruleika gætu rúmlega þúsund störf skapast á framkvæmdatímanum. Verne hefur nú boðað íslenska framkvæmdaaðila á fund þann 20. ágúst næstkomandi til að ræða málin. „Hluti af því að skoða svona stór verkefni er að átta sig á því hver staðan er í íslenskum iðnaði í dag, hver er geta iðnaðarins til þess að skala upp í þessar stærðir. Þetta er samtal sem við viljum eiga, bæði þannig að iðnaðurinn í heild sinni geti skilið þau verkefni sem við erum að skoða og líka að við getum skilið hver staðan er á framkvæmdamarkaði á Íslandi,“ segir Styrmir. „Við fáum tækifæri til þess að kynna hvað okkur langar að gera og sjá hver geta framkvæmdaaðila er til þess að taka þátt í þessum verkefnum. Við viljum náttúrulega styrkja það umhverfi sem við erum í og að nærsamfélagið okkar njóti góðs af þeim áætlunum og áformum sem við vonumst til þess að geta farið í.“ Enn er of snemmt að segja hvenær framkvæmdir gætu hafist, verði ákveðið að ráðast í þær, og hvað verkefnið gæti tekið langan tíma. Það fari allt eftir því hvernig samtalið við framkvæmdaaðila þróast. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu , sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article