Viðskipti | mbl | 6.8.2026 | 11:56 Gæti skapað yfir þúsund störf Verne er til húsa á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrirtækið rekur einnig gagnaver víða á Norðurlöndum og hefur tilkynnt um innkomu á franskan markað. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Verne undirbýr mögulega stækkun gagnavers fyrirtækisins í Reykjanesbæ og fundar með íslenskum framkvæmdaraðilum síðar í mánuðinum til að meta hvort innlendur iðnaður getur tekið þátt í verkefni af þeirri stærðargráðu. Gagnaver fyrirtækisins í Reykjanesbæ er í dag meðal þeirra stærstu á Íslandi. Nýtt 240 MW spennuvirki hefur verið tekið í notkun sem skapar grunn fyrir frekari uppbyggingu. Til skoðunar er verkefni sem felur í sér stækkun gagnaversins um 120 MW. Frétt af mbl.is Stærsti samningur Verne til þessa Frétt af mbl.is Styrmir Hafliðason nýr framkvæmdastjóri Verne á Íslandi Funda með fulltrúum iðnaðarins Verne hefur boðað fulltrúa úr íslenskum iðnaði á fund 20. ágúst þar sem fyrirtækið hyggst kynna áform sín og ræða getu verktaka og iðnaðarfyrirtækja til að koma að hugsanlegri uppbyggingu. Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne á Íslandi, segir enn of snemmt að segja til um hvort ráðist verði í uppbygginguna. „Þetta er verkefni af þeirri stærðargráðu að við áætlum að mannaflaþörfin á hápunkti framkvæmdatímans verði yfir þúsund manns.“ Styrmir segir fundinn hluta af þeirri undirbúningsvinnu sem nú standi yfir áður en ákvörðun verður tekin. „Við viljum bæði kynna þau verkefni sem við stefnum að og átta okkur á því hvernig staðan er í íslenskum iðnaði. Þetta er tvíhliða samtal. Við viljum skilja hvaða geta er til staðar, hversu mikið vinnuafl er laust og hvernig íslenskur markaður getur stutt við verkefni af þessari stærðargráðu. Við erum að kanna hvort verkefnið sé raunhæft á Íslandi og hvaða forsendur þurfa að vera til staðar áður en hægt er að ákveða endanlega að farið verði af stað.“ Frétt af mbl.is Gervigreindin að taka verin yfir Ísland áfram flaggskip Verne er um þessar mundir í umfangsmikilli uppbyggingu víða á Norðurlöndum og hefur einnig tilkynnt um innkomu á franskan markað. Þrátt fyrir það segir Styrmir mikilvægt að Ísland gegni áfram lykilhlutverki innan fyrirtækisins. „Verne fæddist á Íslandi og hér hefur flaggskip fyrirtækisins verið frá upphafi. Þótt við séum að vaxa í fleiri löndum viljum við tryggja að Ísland verði áfram ein af stærstu rekstrareiningum félagsins.“ Þannig segir hann fyrirtækið skoða ný verkefni hér á landi samhliða uppbyggingu erlendis. Frétt af mbl.is Barrot skoðaði gagnaver Verne Tímasetning enn óljós Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir gætu hafist ef af verkefninu verður. Að sögn Styrmis ræðst það af því hvenær fyrirtækið lýkur þeirri könnunaryfirferð sem nú stendur yfir. „Við þurfum að tikka í öll box áður en við getum gefið út nákvæman tímaramma. Við erum nálægt þeim tímapunkti en erum ekki alveg komin þangað enn.“ Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þegar Churchill hafði sæti við borðið Sigurður Már Jónsson Íslenska lífeyriskerfið og ESB Fleira áhugavert Skýjað og súld vestan til en bjart fyrir austan Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Vígja hjón án tilskilinna réttinda NATO treystir á nýja tækni Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Ingibjörg tekur við af Þórunni Þórunn kveður Úrval Útsýn Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Einar Örn nýr forstjóri First Water Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Þórunn kveður Úrval Útsýn Ingibjörg tekur við af Þórunni Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Einar Örn nýr forstjóri First Water 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Þórunn kveður Úrval Útsýn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Ingibjörg tekur við af Þórunni Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Amazon nær sögulegum áfanga á hlutabréfamarkaði Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þegar Churchill hafði sæti við borðið Sigurður Már Jónsson Íslenska lífeyriskerfið og ESB Fleira áhugavert NATO treystir á nýja tækni Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Meira jafnvægi að komast á markaðinn Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Ingibjörg tekur við af Þórunni Þórunn kveður Úrval Útsýn Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Einar Örn nýr forstjóri First Water Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Þórunn kveður Úrval Útsýn Ingibjörg tekur við af Þórunni Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Einar Örn nýr forstjóri First Water 66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Þórunn kveður Úrval Útsýn Einar Örn nýr forstjóri First Water Gengið frá kaupum á Flyover Sara Lind og Egill til Landsnets Ingibjörg tekur við af Þórunni Oculis fær jákvæð viðbrögð frá FDA vegna MS-lyfs Amazon nær sögulegum áfanga á hlutabréfamarkaði