Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sterkari dollari setur þrýsting á evruna

Read Full Article →

Evran hefur veikst nokkuð á síðustu vikum og náði sínu lægsta gildi gagnvart Bandaríkjadalnum í rúmt ár. Á sama tíma hefur dollarinn styrkst, eftir að bandaríski seðlabankinn gaf til kynna að vextir kynnu að hækka frekar á komandi misserum, að því er segir í frétt Financial Times . Evran hefur veikst um 2,6% gagnvart dalnum í þessum mánuði og stendur nú í um 1,135 dölum, sem er veikasta staða gjaldmiðilsins frá því í júní í fyrra. Þróunin endurspeglar breyttar væntingar fjárfesta til efnahagshorfa beggja vegna Atlantshafsins. Á evrusvæðinu benda ný gögn til þess að hagkerfið hafi hægt á sér í kjölfar hás orkuverðs, á meðan verðbólguþrýstingur hefur minnkað samhliða lækkandi olíuverði. Það hefur dregið úr líkum á frekari vaxtahækkunum frá ECB. Markaðir gera nú ráð fyrir einni vaxtahækkun til viðbótar fyrir árslok, en væntingar um frekari hækkanir hafa minnkað undanfarna daga. Á sama tíma hefur dollarinn styrkst, en ný skilaboð frá bandaríska Seðlabankanum hafa styrkt þá sýn fjárfesta að vaxtastig þar í landi verði áfram hátt um sinn. Framangreint getur einnig haft þýðingu fyrir smærri gjaldmiðla á borð við íslensku krónuna. Margar mikilvægar innfluttar vörur, þar á meðal olía og ýmsar hrávörur, eru verðlagðar í dollurum og því geta breytingar á stöðu bandaríkjadals haft áhrif á verðþróun á alþjóðamörkuðum. Krónan hefur veikst um 2,3% gagnvart Bandaríkjadal í júní samkvæmt gögnum Seðlabankans. Nafngengi krónunnar gagnvart dalnum var síðast lægra í janúar síðastliðnum.

Share this article