Ásgeir Brynjar Torfason var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin. Þeir ræddu einnig um ,,fjórðu kynslóð peninga". Ræða Carneys í Davos Ásgeir Brynjar sagði að Mark Carney, forsætisráðherra Kanada og fyrrverandi seðlabankastjóri bæði Kanada og Bretlands, hefði sagt í ræðu sinni á efnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss að það væri komið rof í heimskerfinu. Carney hefði raunar verið frá 2019 að tala um að tímabili bandaríska dollarans sem aðalgjaldmynt heimsins væri að ljúka. Þær breytingar væru að verða að dollarinn hætti að vera þungamiðjan í fjármálum heimsins. Ekki vitað hvað kemur í stað dollarans Ásgeir Brynjar sagði að núna væri „interregnum“ millibilsástand því ekki væri vitað hvað tæki við af dollaranum. Hann benti á að fyrir tíma dollarans sem aðalgjaldmyntar heimsins hefði breska sterlingspundið gegnt því hlutverki. Margpóla heimur gæti orðið stöðugra net. Carney hefði talað um hlutverk millistórra ríkja sem gætu vegið á móti forystu Bandaríkjanna í heimsmálum. Bandaríkjastjórn væri bara að hugsa um MAGA; að hagsmunir Bandaríkjanna væru í fyrirrúmi og þeir hugsuðu um sjálfa sig. Ótrúlega óstöðugur tími veldur verðhækkun gulls Vitað er að þegar óstöðugleiki er í heimsmálum leiti fjárfestar í gull, seðlabankar heimsins eigi talsvert af gulli og hefðu keypt gull í fyrra. Þeir hefðu minnkað vægi Bandaríkjadollars í gjaldeyrisvarasjóðum. Það séu þekktir toppar þegar óvissa eykst, hvort sem það er stríðsóvissa eða fjármálaóvissa. Bitcoin hefur fallið í verði Ásgeir Brynjar vill tala um rafmyntir sem „sýndareign"; þær séu ekki mynt í eiginlegum skilningi orðsins. Þetta séu sýndareignir sem hafi ekkert raunverulegt virði á bak við sig. Virðið hafi rokið upp þegar Donald Trump var kosinn Bandaríkjaforseti aftur vegna þess að hann sé mikill áhugamaður um rafmyntir. Markaðir hefðu trúað því að hann færi að auka vægi þeirra. Lög um rafmyntir (Genius Act) væru hins vegar ekki komin til framkvæmda. Virði bitcoin hefði minnkað mikið að undanförnu. Vandinn með það sem hefur ekkert virði er að ef nógu margir trúa að það hafi eitthvert virði þá heldur það virði þar til að allir hætta að trúa á virðið! Þetta sé þekkt úr sögunni. Það er í raun ekki hægt að útskýra verðsveiflur bitcoin með neinum skynsamlegum rökum. Greiðslumiðlun háð tölvutengingum og kortafélögum Ásgeir Brynjar segir að greiðslumiðlun sé algerlega háð erlendum stórfyrirtækjum. Umræða sé í Evrópu um hversu háð lönd séu bandarískum tölvufyrirtækjum. Danska ríkið hafi sagt upp samningi við Microsoft og ætli að taka upp annars konar tölvubúnað fyrir opinber tölvukerfi. Spurning sé hvernig brugðist verði við því bandarískum fyrirtækjum og stjórnvöldum sé ekki lengur treyst. Hér má heyra Heimsglugga vikunnar Ásgeir Brynjar Torfason ræddi í Heimsglugganum um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar. Hann segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfi heims dollarinn sé ekki lengur viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við.