Security News

Cybersecurity news aggregator

🏛️
INFO News Mbl Innlent

Ríkisstjórnin fær einkunnina -7

  • What: Evaluation of the government's performance in parliament
  • Impact: Political and economic stakeholders
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.6.2026 | 11:00 Ríkisstjórnin fær einkunnina -7 Ríkisstjórnin. mbl.is/Anton Brink Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Viðskiptaráð birtir í dag greiningu á frammistöðu ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Þar er ráðherrum gefin einkunn eftir því hvort þau þingmál sem þeir komu til leiðar höfðu jákvæð eða neikvæð efnahagsleg áhrif. Lísbet Sigurðardóttir lögfræðingur Viðskiptaráðs segir greiningunni m.a. ætlað að vera eins konar heildstætt uppgjör á því sem stjórnvöld hafa komið til leiðar: „Af 112 samþykktum þingmálum ríkisstjórnarinnar höfðu 52 þeirra markverð efnahagsleg áhrif að okkar mati, og áhugavert að 26 þeirra höfðu neikvæð áhrif en jafnmörg voru með jákvæð áhrif. Þar sem neikvæðu málin vógu þyngra fékk ríkisstjórnin þó neikvæða einkunn heilt á litið og mælist frammistaðan -7 stig að þessu sinni.“ Það hjálpaði Viðskiptaráði við greininguna að ráðið vaktar öll þingmál og sendir iðulega inn umsagnir við frumvörp en Lísbet segir að einkunnagjöfin feli vissulega í sér huglægt mat. „Þeim þingmálum sem við teljum að hafi áhrif á atvinnulíf og efnahag gáfum við jákvæða eða neikvæða einkunn á skalanum 1 til 3 eftir því hvort vænta megi þess að áhrifin verði lítil, miðlungs eða mikil, en til einföldunar voru mál þingnefnda ekki höfð með í úttektinni.“ Meðaleinkunn ríkisstjórnarinnar versnar á milli ára en Lísbet bendir á að þarsíðasta þingár hafi verið óvenjulegt vegna þingrofs og kosninga og því ekki að fullu samanburðarhæft. „Í fyrra mátum við áhrifin heilt á litið jákvæð og var Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þá efstur á blaði, m.a. vegna sölu á eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka, en hann fær verstu útkomuna í þetta skiptið.“ Jóhann að standa sig í orkumálum Efstur á lista í þetta skiptið er Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, með 7 þingmál sem höfðu markverð efnahagsleg áhrif og einkunnina +4. Lísbet segir þar vega þyngst lagabreytingar sem juku skilvirkni í orkuöflun, minnkuðu stjórnsýslubyrði og styttu tímafresti. „Á móti komu mál sem leiddu til frádráttar stiga, s.s. jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, og breytingar sem útvíkkuðu byrðina af úrvinnslugjaldi,“ útskýrir Lísbet og bætir við að ráðherrann hafi notið góðs af því að almennur samhljómur var um að ráðast í löngu tímabærar umbætur í orkumálum. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fær jafn mörg stig og Jóhann Páll með þrjú þingmál sem töldust hafa efnahagsleg áhrif og einkunnina +4. Lísbet segir Þorbjörgu m.a. hafa fengið stig fyrir að létta töluvert á reglum um jafnlaunavottun. „Það var eitt af jákvæðustu málum þingvetrarins og löngu tímabær aðgerð enda var jafnlaunavottunin afar íþyngjandi og kostnaðarsöm fyrir fyrirtækin í landinu,“ segir Lísbet. „Þá kom Þorbjörg til leiðar sameiningu sýslumannsembætta, sem var mikið framfaraskref, en engu að síður fær hún bara eitt stig af þremur mögulegum fyrir þá breytingu því við söknuðum þess að sjá hagræðingu fylgja þessu máli. Einnig fékk dómsmálaráðherra samþykkt þingmál um stafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum sem mun að líkindum hafa jákvæð áhrif.“ Í þriðja sæti hafnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra með +2 stig og segir Lísbet að þar muni mest um fullgildingu fríverslunarsamninga við Úkraínu og Mercosur. Daði Már rekur lestina Víkur þá sögunni að tossunum þetta árið: Í þriðja neðsta sæti hafnar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra með einkunnina -2. Sú einkunn skrifast m.a. á breytingar á lögum um leigubifreiðar þar sem stöðvaskylda var endurvakin, og einnig auknar heimildir til strandveiða sem Viðskiptaráð veitti neikvæða umsögn. Inga Sæland og Ragnar Þór Ingólfsson deila saman næstneðsta sætinu, sem ráðherrar félags- og húsnæðismála. Ráðuneytið fær einkunnina -5 og segir Lísbet að þar vegi þyngst hækkun stofnframlaga til óhagnaðardrifinna leigufélaga, hækkun hlutdeildarlána, auknar kvaðir á leigusala og tenging bóta við launavísitölu. „Opinber afskipti á húsnæðismarkaði voru aukin og vísitölutenging bóta er til þess fallin að auka ríkisútgjöld til muna.“ Lægstu einkunnina fær fjármála- og efnahagsráðherra sem var, sem fyrr segir, með hæstu einkunnina í síðustu mælingu. Daði Már hlýtur að þessu sinni einkunnina -7 með 13 þingmál. Lísbet segir Daða Má hafa komið mörgu jákvæðu til leiðar og fengið ófáa plúsa í kladdann. „En svo voru þó nokkuð mörg mál sem fá neikvætt vægi í greiningunni og draga heildareinkunnina niður.“ Meðal þess sem Viðskiptaráði þykir hafa verið vel gert á þingárinu voru aðgerðir ráðherrans til að liðka fyrir erlendri fjárfestingu og til að heimila launþegum að láta iðgjald vegna séreignarlífeyrissparnaðar ganga upp í höfuðstól húsnæðislána. „En til lækkunar koma m.a. ýmsar breytingar á skattalögum, kílómetragjald og íþyngjandi löggjöf um fjármálamarkaði . Þá gefum við fjárlögum og fjármálaáætlun neikvæða einkunn vegna útgjaldaaukningar og skattahækkana. Við teljum líka forsendur áætlunarinnar brostnar, m.a. vegna mála sem aðrir ráðherrar náðu í gegn á þingárinu, og hæpið að áætlunin muni standast.“ Mál sem beðið er eftir Í greiningu Viðskiptaráðs er einnig skoðað hvaða jákvæðu mál dagaði uppi á þinginu og eins hvaða neikvæðu mál fengu ekki framgang. Lísbet segir það miður að t.d. frumvarp um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna skyldi ekki verða að lögum og eins er vonandi að frumvörp sem sneru að einföldun regluverks um erlendar fjárfestingar og afnám banns á kaupréttum stjórnarmanna komist í höfn á næsta þingi. „En það má fagna því að frumvarp um viðbótarskatt á streymisveitur náði ekki í gegn og eins er t.d. gott að heildarendurskoðun loftslagslaga hafi ekki orðið að veruleika því þar vantaði upp á að gera fullnægjandi mat á áhrifum laganna,“ segir Lísbet. „Við munum endurtaka úttektina að næsta þingvetri liðnum og það er von okkar að niðurstaða þess mats verði jákvæðari, enda eiga bæði fyrirtæki og einstaklingar mikið undir því að svo sé.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Myndskeið: Ronaldo skráði sig í sögubækurnar Setja nýjar reglur um hagsmuni barna á flótta Opin fyrir ástinni á samfélagsmiðlun Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rauð viðvörun vegna hitabylgju í 15 borgum Myndi kosta rúman milljarð á ári Ríkisstjórnin fær einkunnina -7 Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Myndskeið: Ronaldo skráði sig í sögubækurnar Setja nýjar reglur um hagsmuni barna á flótta Opin fyrir ástinni á samfélagsmiðlun Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Rauð viðvörun vegna hitabylgju í 15 borgum Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Flugvirkjar meta framhaldið Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er

Share this article