Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.6.2026 | 11:50 Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Ming við upphaf fjórða dag aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Karítas Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ekkert sem bendir til geðræns vanda Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur » Fleiri tengdar fréttir Fjölskyldulíf Mancel-fjölskyldunnar var ekki með eðlilegum hætti að mati systur Emeric Mancel. Hún segir fjölskyldulíf þeirra hafa minnt á líf fjölskyldu frá sjöunda áratugnum. Þannig hafi fjölskyldufaðirinn Emeric, sem fannst látinn á hótelherberginu ásamt dóttur sinni í júní í fyrra, tekið allar ákvarðanir fyrir fjölskylduna, t.a.m. hafi Ming Ting Mancel ekki farið ein að versla fyrir heimilið heldur hafi Emeric alltaf verið með og greitt fyrir allt. Ming hafði enga aðkomu að fjármálum heimilisins. Þetta kom fram í framburði Ericu Mancel, systur Emeric, á fjórða degi aðalmeðferðar í Edition-málinu svokallaða. Hún sagði bróður sinn hafa áður tjáð sér að Ming tæki engar stórar ákvarðanir er vörðuðu heimilislífið. Aðspurð kvað hún bróður sinn stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hefðu verið Emeric undirgefin. Erica sagði að hún teldi að bróðir sinn hefði skipulagt alla Íslandsferðina þar sem hann hefði verið vanur að skipuleggja allt fyrir fjölskyldu sína. Hann hafði sent tölvupóst til Ericu þegar fjölskyldan var komin til Íslands þar sem hann sagði að fjölskyldan ætlaði að láta sig hverfa, öll þrjú. Sagðist Erica þá vita að þau ætluðu að binda enda á eigið líf en Emeric lauk tölvupóstinum á orðunum „vertu sæl“. Erica tók fram að Emeric hafi ekki tilgreint hvar hann væri staddur í heiminum þegar hann sendi umræddan tölvupóst. Frétt af mbl.is Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Sannfærð um að Emeric hafi skipulagt Íslandsferðina Við upphaf skýrslutöku Ericu var hún spurð um tengsl sín við bróður sinn. Hún sagði þau hafa orðið náin á síðustu árum eftir að móðir þeirra lést en fjölskyldan hafði slitið tengslum við Ericu eftir að hún giftist fráskildum manni. Aðspurð kvaðst hún ekki hafa verið eins náin Ming eða Cathrine. Sagðist hún hafa hitt bróður sinn oftast einan þar sem eiginkona hans og dóttir voru sjaldnast viðstödd. Þegar hún var spurð út í heilsufar Emeric sagði hún að síðast þegar þau hittust árið 2025 hefði hann verið orðinn mjög veikur. Lýsti hún því að Emeric hefði verið með ófullnægjandi nýrnastarfsemi og að hann hefði þurft að fara í nýrnaskil þrisvar í vikur. Sagði hún bróður sinn hafa verið þunglyndan á þessum tíma bæði vegna veikinda hans og ásakana systur hans um að hann hefði stolið fjölskylduarfi. Sagði hún þetta hafa orðið til þess að Emeric vildi ekki lengur lifa. Sagðist Erica sannfærð um að Emeric hefði verið búinn að skipuleggja atburðinn á Edition-hótelinu áður en þau komu til landsins. Taldi hún bróður sinn ekki hafa viljað að dóttir hans og eiginkona yrðu ein eftir á lífi þar sem Cathrine væri greindarskert og Ming hefði aldrei séð um fjármál heimilisins og hefði þá þurft að mæta ásökunum systur sinnar ein. Frétt af mbl.is Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Hefði verið erfitt að búa ein Erica sagði fyrir dómi að Cathrine hefði verið lítillega greindarskert vegna vansköpunar á heila. Þegar hún var spurð nánar út í þetta sagðist Erica vera starfandi læknir og að hún hefði verið viðstödd fund á spítalanum þegar Cathrine fæddist þar sem heilsufar hennar var til umræðu. Lýsti Erica því að þegar Cathrine fæddist sýndu skannanir á heila hennar að heilinn hefði skroppið saman. Ekki var þá ljóst hversu mikil áhrif þetta myndi hafa á líf Cathrine en Erica sagði að þegar hún óx úr grasi fór ekki á milli mála að þroski hennar hafi verið hægari en annarra barna. Tók hún þó fram að þegar hún hitti Cathrine á unglingsaldri þótti henni hún hafa góða greind og rakti það til góðs stuðnings foreldra hennar. Var hún þá spurð hvort Cathrine hefði verið háð foreldrum sínum og svaraði hún á þá leið að það hefði verið erfitt fyrir Cathrine að búa ein. Hefði hún viljað það hefði hún trúlega þurft að búa á sambýli. Tengdar fréttir Manndráp á Edition-hótelinu Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ekkert sem bendir til geðræns vanda Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Ming mætt í Héraðsdóm Reykjavíkur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Liðsfélagi Íslendinganna verður sú dýrasta í sögunni „Ég ætlaði að slá í gegn“ Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Áreitni og einelti enn útbreitt Sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Liðsfélagi Íslendinganna verður sú dýrasta í sögunni „Ég ætlaði að slá í gegn“ Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Búist við yfir 35 stiga hita hjá 94 milljónum Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Skeytið frá Rubio Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst kraftmikilla viðbragða stjórnvalda Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Myndi kosta rúman milljarð á ári Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Samhjálp hafði nánast lokið framkvæmdum Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn

Share this article