Laun forstjóra stærstu skráðu fyrirtækja í Bandaríkjunum náðu nýju hámarki á síðastliðnu ári, sem rekja má að stórum hluta til sífellt stærri hlutabréfatengdra launakjara. Þetta kemur fram í árlegri úttekt Wall Street Journal. Samkvæmt greiningunni hækkaði miðgildi forstjóralauna í S&P 500 vísitölunni í 17,9 milljónir dala, eða tæplega 2,3 milljarða króna. Laun forstjóra hafa aldrei mælst hærri. Elon Musk er lang efstur í úttektinni en launapakki hans frá Tesla fyrir árið 2025 nam 158 milljörðum dala. Það er 16-falt meira en samanlögð launakjör hinna 390 forstjóranna í úttekt WSJ. Sjá einnig Hluthafar samþykktu launapakka Musk Á þriðja tug forstjóra og framkvæmdastjóra hjá stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna fengu launapakka að andvirði meira en 100 milljóna dala árið 2025 og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 2021. Þar að auki fjölgaði einnig þeim stjórnendum sem fengu yfir 50 milljónir dala í laun eða yfir 6,3 milljarða króna. Þróunina má að stórum hluta rekja til svokallaðra hlutabréfatengdra launapakka, þar sem endanleg þóknun til stjórnenda er afkomubundin og tengd við þróun hlutabréfaverðs yfir tiltekið tímabil. Eftir að hafa verið lítið áberandi um nokkurt skeið, eru samningar þessir nú að færast í aukana á ný. Fyrirtæki verja fyrirkomulagið með því að vísa til betri samræmingar milli hagsmuna stjórnenda og hluthafa, þar sem verðmæti launapakka ráðist af langtímaárangri. Shankh Mitra, forstjóri fasteignafjárfestingarsjóðsins Welltower, var næst launahæsti forstjórinn í fyrra með 821 milljón dala, eða um 102,6 milljarða króna. Þá var Tim McHugh, fjármálastjóri Welltower, launahæsti fjármálastjórinn. Launapakki hans fyrir árið 2025 hljóðaði upp á 167 milljónir dala, eða sem nemur um 21 milljarði króna. McHugh var einn af þremur fjármálastjórum sem rufu 100 milljóna dala múrinn. Gögn Wall Street Journal benda þó til þess að tengsl milli launa og árangurs séu ekki alltaf skýr. Til að mynda starfi nokkrir af stjórnendunum sem hafa hvað hæst laun, hjá fyrirtækjum sem ekki skiluðu sambærilegri ávöxtun til hluthafa. Að sama skapi hafi mörg hver afkastamestu fyrirtækjanna, greitt stjórnendum sínum mun lægri laun samkvæmt uppgefnum tölum. Engu að síður bendir þróunin til þess að stórir hlutabréfatengdir launapakkar séu enn á ný orðnir áberandi þáttur í starfsumhverfi æðstu stjórnenda í fyrirtækjum vestanhafs.