Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Næsti stjórnarformaður Icelandair

Read Full Article →

Týr furðar sig á þeirri þögn sem ríkir meðal stjórnmálamanna um þann vanda sem Icelandair stendur frammi fyrir. Hann er djúpstæður og ef fram heldur sem horfir gæti hann leitt til sambærilegra áskorana og félagið stóð frammi fyrir í heimsfaraldrinum. Þá studdi íslenska ríkið endurfjármögnun félagsins með 90% ríkisábyrgð á 120 milljóna dala lánalínu samhliða umfangsmikilli hlutafjáraukningu þar sem einkafjárfestar lögðu félaginu til nýtt ­eigið fé. Ríkisábyrgðin var lykilforsenda þess að fjármögnunarpakkinn næði fram að ganga, en lána­línan var þó aldrei nýtt og ábyrgðin því aldrei kölluð fram. Þá myndaðist tækifæri og forsendur til þess að takast á við eitt af grundvallarvandamálum Icelandair: Fyrirtækið er í raun starfsmannafélag sem er skráð á hlutabréfamarkað og einstakt sem slíkt um víða veröld. *** Á sínum tíma var sagt að bandaríski bílaframleiðandinn General Motors væri í raun ekkert annað en risastór lífeyrissjóður starfsmanna sem sinnti bifreiðaframleiðslu í hjáverkum. Það er auðvelt að yfirfæra þennan gamla brandara yfir á Icelandair. Skæruverkföll flugstjóra hafa ­grafið enn frekar undan rekstri félagsins á undanförnum mánuðum. Yfirvofandi átök við flugvirkja og síðar flugfreyjur styrkja aðeins þá mynd. Hagsmunir hluthafa, þeirra sem hafa lagt félaginu til eigið fé, virðast engu skipta í augum þessara hópa. Í því samhengi bendir Týr á þá staðreynd að það eru núna eitthvað kringum þrjátíu flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkur. Flest þeirra hafa greitt hluthöfum arð síðasta áratuginn eða svo. Tvö þeirra hafa ekki gert það: Icelandair og SAS. Icelandair er í hópi flugfélaga sem hafa ekki skilað eigendum sínum arði á sama tíma og mörg önnur flugfélög hafa gert það, og eitt þeirra sem líkist því mest í þeim ­efnum er SAS, sem hefur endað ítrekað á framfæri ríkisins. Flugfélagið SAS hefur orðið háð ríkis­framlögum frá skattgreiðendum í Danmörku og Svíþjóð á undanförnum áratugum. Stefnir Icelandair í sömu átt? Margt bendir til þess. *** Týr hefur heyrt að flugvirkjar áformi nú verkfallsaðgerðir á næstu mánuðum. Þannig var hvíslað að honum að þau áform væru komin á það stig að stefnt væri á verkfallsaðgerðir þremur dögum fyrir sólmyrkvann í ágúst. Miðað við það kæmi það Tý ekki á óvart að ­Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra yrði orðinn stjórnarformaður Icelandair eftir ekki svo langan tíma. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill fyrst í blaðinu sem kom út 24. júlí 2026.

Share this article