Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bosnía svo gott sem komin áfram en þarf að bíða lengi

Read Full Article →

Bosnía og Hersegóvína unnu Katar nokkuð þægilega 3-1. Bosnía komst í 2-0 og Katar ógnaði örlítið er liðið minnkaði muninn í 2-1. Að lokum sigldu Bosníumenn sigrinum þægilega heim. Alajbegovic sýndi af hverju nafn hans var á allra vörum fyrir mót og skoraði glæsilegt mark eftir 29 mínútur. Hann skar tvisvar inn á völlinn og átti bylmingsskot í nærhornið. Annað mark Bosníu kom eftir fyrirgjöf sem fór í tvo Katara og inn. Markið kom á 34. mínútur. Katarar lögðu ekki árar í bát og Al Haydos minnkaði muninn eftir vel útfærða sókn. Mahmic gerði svo út um leikinn með einu mesta klafs marki mótsins hingað til, en boltinn var eins og borðtenniskúla í teignum áður en hann fór inn á 80. mínútu. Bosnía og Hersegóvína er í ágætis stöðu varðandi baráttuna um besta liðið 3. sæti. Þeir eru sem stendur í 3. sæti með 4 stig og fara líklega áfram sem eitt af 8 bestu liðunum í þriðja sæti í riðlunum 12. Þetta ætti að duga nema að öll úrslit falli gegn Bosníu. Það kemur hins vegar ekki í ljós hvort að liðið fari áfram fyrr en allir riðlar verða búnir. Katar er úr leik og endar í neðsa sæti. Svona líta 32-liða úrslitin út eins og stendur Suður-Kórea - Kanada Bandaríkin - Bosnía og Hersegóvína Sviss - Belgía Mörkin: Bosnía og Hersegóvína vann öruggan 3-1 sigur gegn Katar. Liðið endar í 3. sæti B-riðils og er í ágætis stöðu að komast áfram sem eitt af þeim liðum sem eru með besta árangur í 3. sæti. Átta lið úr riðlunum tólf fara áfram.

Share this article