Bosnía og Hersegóvína unnu Katar nokkuð þægilega 3-1. Bosnía komst í 2-0 og Katar ógnaði örlítið er liðið minnkaði muninn í 2-1. Að lokum sigldu Bosníumenn sigrinum þægilega heim. Bosnía og Hersegóvína er í ágætis stöðu varðandi baráttuna um besta liðið 3. sæti. Þeir eru sem stendur í 3. sæti með 4 stig og fara líklega áfram sem eitt af 8 bestu liðunum í þriðja sæti í riðlunum 12. Þetta ætti að duga nema að öll úrslit falli gegn Bosníu. Það kemur hins vegar ekki í ljós hvort að liðið fari áfram fyrr en allir riðlar verða búnir. Katar er úr leik og endar í neðsa sæti. Svona líta 32-liða úrslitin út eins og stendur Suður-Kórea - Kanada Bandaríkin - Bosnía og Hersegóvína Sviss - Belgía