Í nótt kom í ljós að Bosnía og Hersegóvína komst í fyrsta skipti í sögunni áfram upp úr riðlakeppni á HM. Liðið fer í gegnum hina brögðóttu þriðja sætis leið. Átta af tólf bestu liðunum í þriðja sæti fara áfram í 32-liða úrslitin, sem eru leikin í fyrsta sinn. Bosnía tók fyrst þátt á HM 2014 en komst ekki upp úr riðli. Þrír riðlar kláruðust í gær og við eigum eftir að klára aðra níu næstu daga. Þrír riðlar á dag klárast og leikið er á sama tíma. Ljóst er að Bosnía þarf bara að vera betri en fjögur lið sem eru í þriðja sæti. Nú þegar er ljóst að liðin í 3. sæti í C, D, I og J riðli ná ekki Bosníumönnum. Þau gætu þó vel farið áfram, en Bosníumenn eru öruggir með sín fjögur stig. Bosnía vann Katar 3-1 og gerði 1-1 jafntefli gegn Kanada, en mátti þola 4-1 tap gegn Sviss. Staðan eins og er: Feitletruðu liðin eru þau sem komast áfram eins og er. Stjörnumerkt lið (*) eru búin með leiki sína í riðli. Hin eiga einn leik eftir. B-riðill - Bosnía og Hersegóvína* – 4 stig – mínus eitt í markatölu (búnir að keppa) F-riðill - Svíþjóð – 3 stig – núll í markatölu L-riðill - Króatía – 3 stig – mínus eitt í markatölu A-riðill - Suður-Kórea* – 3 stig – mínus eitt í markatölu (búnir að keppa) J-riðill - Alsír – 3 stig – mínus tvö í markatölu D-riðill - Paragvæ – 3 stig – mínus tvö í markatölu C-riðill - Skotland* – 3 stig – mínus þrjú í markatölu (búnir að keppa) H-riðill - Grænhöfðaeyjar – 2 stig – núll í markatölu G-riðill - Belgía – 2 stig – núll í markatölu K-riðill - Lýðstjórnarlýðveldið Kongó – 1 stig – mínus eitt í markatölu E-riðill - Ekvador – 1 stig – mínus eitt í markatölu I-riðill - Senegal – 0 stig – mínus þrjú í markatölu Af hverju? Nú þegar er ljóst að Suður-Kórea og Skotar enda með þrjú stig. Senegal og Írak eru bæði án stiga í I-riðli og geta því ekki fengið meira en þrjú stig. Í D-riðli mætast Paragvæ og Ástralía. Þau eru bæði með þrjú stig og sigurvegarinn endar því í þriðja sæti með þrjú stig. Ef liðin gera jafntefli endar Paragvæ í þriðja sæti með fjögur stig (líkt og Bosnía) en með lakari markatölu (-2 en Bosnía er með -1).