Sænska karlalandsliðið í fótbolta mun berjast við það japanska um öruggt sæti í 32-liða úrslitum HM í kvöld. Japanir eru með fjögur stig og Svíþjóð þrjú fyrir leikinn og því allt opið hjá liðunum í kvöld. Íslendingar eru nokkuð heppnir hvað klukkuna og leiktíma varðar miðað við nágrannaþjóðir okkar. Leikurinn byrjar klukkan 23:00 á íslenskum tíma en eitt eftir miðnætti á sænskum. Hin einfaldasta lausn Victor Nilsson Lindelöf, fyrirliði sænska liðsins, sagði í viðtali fyrir mótið að til væri einföld lausn á þeim vandræðum sem tímamismunurinn kynni að valda. „Þetta er einfaldasta lausnin í heimi. Ef við viljum að allir geti horft á leiki okkar á hæfilegum tíma, þá skulum við breyta tímanum.“ Þótt ríkisstjórn Svía hafi ekki fallist á þá niðurstöðu munu Svíar munu hins vegar ekki láta tímamismuninn stoppa sig að sögn sænska ríkisútvarpsins. „Öll Svíþjóð mun horfa á Japan – Svíþjóð,“ segir Max Bursell, yfirmaður íþróttasviðs SVT. Sænska þjóðin mun því að líkindum snúa sólarhringnum við, sama hvað klukkan slær.