Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Breytingar á landsliðshópnum

Read Full Article →

Valgeir Lunddal er kominn í landsliðið á ný.Rúv / Mummi Lú Hóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefur verið breytt en liðið leikur tvo æfingaleiki á næstunni. Fyrst mætir liðið Japan 31. maí og svo heimsmeisturum Argentínu 10. júní. Tveir mismunandi hópar eru fyrir leikina. Sverrir Ingi Ingason átti að leika gegn Japan en hefur þurft að draga sig úr hóp. Stefán Teitur Þórðarson færist yfir úr hópnum gegn Argentínu yfir í Japanshópinn. Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson og varnarmaðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson koma inn í hópinn gegn Japan. Nú er 21 leikmaður í Japanshópnum og 22 leikmenn í Argentínuhópnum.

Share this article