Security News

Cybersecurity news aggregator

🍎
INFO News Viðskiptablaðið

Apple hækkar verð um allt að 25%

  • What: Apple increased prices of Macs and iPads by up to 25%
  • Impact: Consumers in Iceland may see higher costs for Apple products
Read Full Article →

Apple hækkaði fyrr í dag verð á Mac-tölvum og iPad-spjaldtölvum. Í síðustu viku sagði Tim Cook, forstjóri félagsins, að ört hækkandi verð á minnis- og geymslukubba (e. memory and storage chips) geri verðhækkanir óhjákvæmilegar. Netverslun Apple var tekin niður um stund, eins og fyrirtækið er vant að gera þegar nýjar vörur eru kynntar. Þegar síðan opnaði aftur hafði verð á Mac-tölvum hækkað um 15-25% og verð á iPad um 15 til 25% Grunnverð MacBook Air hækkaði til að mynda um 200 dali eða um 25 þúsund krónur og nemur nú 1.299 dölum eða um 165 þúsund krónum. Jafnframt var verð á MacBook Pro hækkað um 300 dali, eða um 38 þúsund krónur, og stendur nú í 1.999 dölum eða um 254 þúsund krónum. Verð á iPad Air hækkaði um 150 dali eða um 19 þúsund krónur og stendur nú í 749 dölum eða um 95 þúsund krónum. Verð á iPhone símum breyttist ekki, en Apple gaf í skyn að frekari hækkanir gætu fylgt í kjölfarið. „Við höfum aldrei séð verð á íhlutum hækka svona mikið, svona hratt.“ segir í tilkynningu Apple. Samkvæmt TechInsights hefur verð á DRAM-minniskubbum og NAND-geymslukubbum fjórfaldast á síðustu tólf mánuðum vegna mikillar eftirspurnar frá gervigreindarfyrirtækjum. Búist er við áframhaldandi hækkunum fram á næsta ár. Sjá einnig Uppgjör Micron langt fram úr væntingum Hækkanir Apple komu í kjölfar sterkrar afkomutilkynningar Micron Technology, sem er stór framleiðandi minnis- og geymslukubba. Micron gerir ráð fyrir að framboð muni ekki ná að anna eftirspurn fyrr en eftir árið 2027. Sérfræðingar segja Apple lengi hafa nýtt gríðarleg kaup sín á íhlununum til að þrýsta niður verði.

Share this article