Ferðaþjónustufyrirtækið Tröll ferðaþjónusta hefur náð samkomulagi um kaup á Ísbúð Vesturbæjar af Kjarnavörum, dótturfélagi Beru. Heildarvirði Ísbúðar Vesturbæjar í viðskiptunum var 215 milljónir króna, að því er kemur fram í afkomutilkynningu Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Bera ákvað að setja Ísbúð Vesturbæjar í söluferli í byrjun árs eftir að hafa eignast félagið við 4 milljarða króna kaup á Kjarnavörum í lok síðasta árs. Sjá einnig Setja Ísbúð Vesturbæjar í söluferli Ísbúð Vesturbæjar rekur í dag fimm sölustaði á höfuðborgarsvæðinu. Þegar félagið var auglýst til sölu kom fram að það hefði yfir 22% markaðshlutdeild á markaði sem óx um tæp 8% frá árinu 2023 til 2024. Ísbúð Vesturbæjar hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2024 en félagið hagnaðist um 12 milljónir króna á árinu 2024. Tekjur ísbúðarinnar námu 583 milljónum króna á árinu 2024. Tröll ferðaþjónusta, sem er í eigu Ingólfs Ragnars Axelssonar, sérhæfir sig einna helst í fjöldagsferðum og afþreyingu tengdri þeim. Jafnframt hefur félagið verið að færa út kvíarnar og hóf hótelrekstur á árinu 2023 í kjölfar kaupa á gistihúsum í Hrífunesi og Drangshlíð. Tröllahótel keyptu jafnframt hótelið Puffin Hótel Vík og hostelið Puffin Hostel Vík í Vík í Mýrdal árið 2024. Sjá einnig Hefur tröllatrú á bransanum Tröll ferðaþjónusta velti 3,2 milljörðum króna og tapaði 25 milljónum króna árið 2024. Eignir móðurfélagsins BlágrýtiOI ehf. námu tæplega 4,9 milljörðum króna í árslok 2024 og eigið fé var rúmlega 1,5 milljarðar kóna.